Jibbý jibbýýýý já Mamma er búin kaupa sér hús !!!!!! Þannig að nú verður framtíðar heimili mömmu á Akranesi jörundarholt 15... vonandi má segja þetta svona opinberlega, mamma varstu ekki búin að láta nánustu vita annars. Þetta er einbýli, viðarhús, með nýlegri verönd, fjórum svefnherbergjum, nóg pláss.... og bílskúr svo eitthvað sé talið, nýlegar innréttingar á baði og í eldhúsi hvað vill maður meira. Hún æltlar að skrifa undir á morgun held ég en ég er ótrúlega glöð fyrir hennar hönd og hugsa að henni eigi eftir að líða mjög vel þarna með honum Atla bróður.
Ég hef annars lítið að segja í dag, var með bílinn í tilboðsgerð í viðgerð, ég veit ekki hvað skal segja en ég er alltaf eitthvað svo andlaus þegar ég þarf að borga mikið í viðgerð á bílnum sem er annars mjög góður, Opel Vectra, bara fínn bíll en viðgerðir eru óþolandi að mínu mati, ég er verulega að hugsa um að kaupa mér annan bíl, reyndar hugsa ég alltaf svona þegar kemur að viðgerð.... ekki það að við séum alltaf með bílinn í viðgerð en samt. Það væri svo gaman að eyða þessum peningum í eitthvað annað.
Við systkynin vorum að tala saman á MSN í gær og þá kom í ljós að Íslendingar hafa minnkað all verulega fiskneyslu.... Þetta finnst mér vera mjög alvarlegt mál.. Auðvitað veit ég að fiskur er dýr en þarna kemur líka skýring á mikilli offitu Íslendinga sem mér finnst vera verulega að aukast, ekki það að ég sé eitthvað skárri sjálf en maður hugsar ósjálfrátt út í þetta held ég. Fólk er farið að borða svo vitlaust, margir hverjir ekki endilega mjög óhollt en bara mikið og já ekki rétt samsetta fæðu. Þannig að ég borðaði fisk í kvöldmatinn og ætla að vera með fisk á morgun líka fyrir mig og Nínu.....
Já þetta var það sem ég vildi koma frá mér í bili....
Kannski nokkrar afmæliskveðjur í lokin, Hún Kolbrún Eva Sigurðardóttir, Kolla okkar átti afmæli á laugardaginn og varð heila þrjátíu ára... Svo átti hann Bjarki (Grétu og Lúlla sonur í Höxter) afmæli á mánudaginn og í dag á hann Hallur Freyr Silla og Mjallar sonur afmæli, níu ára eins og Bjarki. Til hamingju allir saman....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
þriðjudagur, janúar 27, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home