Íslensk Sumarhátíð
Hjá Svölu þann 18.júní.
Gaman gaman, allir koma með eitthvað og kostnaður fyrir bjór og kjöti verður deilt á þá sem koma. Það verður gaman að koma og hitta þetta góða fólk og kannski maður taki syrpu og æfi sig á gítarinn svo það sé hægt að syngja nokkur íslensk lög og vera með gítarinn undir. Ég hlakka til!
Mamma og Þórður ætla að skella sér í sumarferð til Skandinavíu. Eru búin að taka íbúð á leigu í Kaupmannahöfn og ætla svo að koma með okkur í bústað í Svíþjóð. Við vorum búin að festa okkur á raðhús, þá hefðu þau sofið í koju, einn uppi og ein niðri. En Alex skrifaði manninum sem sér um þetta í gær og kannski er hægt að fá stærra hús með svona stuttum fyrirvara. Hann er ekki búin að svara. Já þannig að þetta verður bara ættarmót, sumarfríið þetta árið. Ótrúlega gaman, ég er virkilega glöð með þetta, því ég kem örugglega ekki heim meira þetta árið. Já sorrý að segja það en það er satt.
Ég er að byrja í átaki í dag. Ég og Þóra, kannski bræður mínir, veit ekki hvað er með þá en ég verð að búa mér til einhverja áætlun í þessu átaki. Þá hefur maður þetta svart á hvítu, það er alltaf betra.
Jæja nú eru allir hættir að nenna að lesa svo að ég kveð að sinni.
bestu kveðjur


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home