fimmtudagur, júní 02, 2005

Andlitsmaski og Íslandsferð

Hún Nína heimagerði fyrir mig andlitsmaska í gær. Hann er gerður úr haframjöli, rjóma og hunangi. Mjög gróft þegar þetta liggur á húðinni í 15 mínútur en húðin er svo mjúk á eftir. Reyndar var súrt rjómabragð í nefinu á mér í allt gærkvöld en það er nú bara smáatriði. Ég mæli með þessu fyrir þau börn sem vilja gleðja mæður sínar.

Inga Björk, Seydi, Júlían og Henrik góða ferð til Íslands og áfram til Húsavíkur á Íslandi. Sjáumst hress í haust! Góða skemmtun og njótið vina og ættingja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters