Hæ
Við áttum mjög skemmtilega helgi. Verst hvað maður þarf að jafna sig eftir svona skemmtihelgar. Við fórum á föstudagskvöld í nágrannapartý. Það er hér í bænum nágrannafélög í öllum götum og okkar félag var að halda upp á Schutzenfest en það er þegar skotkongur fær heiðurinn af því að bjóða gestum og gangandi upp á bjór og aðra drykki alla nóttina og halda uppi heiðri skotfélaganna í hverfinu í tvö ár. Mjög skrítið fyrir okkur Íslendinga að skilja þetta en þetta er mjög algengt hér í Þýskalandi. Ókosturinn við þetta er að þetta kostar morðfjár. Þið getið ímyndað ykkur hvað það kostar að borga bjór ofan í hátt í 300 gesti heilan dag og kvöld. Omg, samt eru alltaf einhverjir "bavíanar" sem keppast við að skjóta niður trélíki af fugl til að verða skotkonungurinn. Við vorum ekki heima á aðal deginum sem var laugardagurinn (sem betur fer!!!). En á föstudeginum komum við heim um 3 um nóttina eftir að hafa dansað af okkur buxurnar!!! Gaman gaman. Sérstaklega þegar ég var búin að stilla vekjaraklukkuna kl.8 til að geta vaknað daginn eftir.
Svo var haldið á leið til mágs míns, hans Matthiasar og fjölskyldu en þau eiga heima nálægt Hannóver. Það var rólegt en mjög gaman hjá þeim, borðuðum góða köku og mikinn mat og drukkum Caipirinja sem er mexikanskur rosalega góður drykkur. Maður þarf að fá sér svona ísmyljara til að gera þennan drykk.
Frænkurnar voru svo rosalega góðar saman að það var alveg yndislegt að sjá þær leika saman. Þeirra vegna þarf maður að vera duglegur að hittast, líka okkar vegna, við náum vel saman. Sérstaklega þegar við spilum á kvöldin alls kyns spil ÞVÍ ÉG TAPA ALLTAF...... Mjög óréttlátt, ég er orðin frekar tapsár svona í seinnitíð og mér fannst þetta leiðinlegt spil sem við spiluðum á laugard.kvöld...... (Ein gengin í barndóm aftur?)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home