föstudagur, júlí 01, 2005

Heimsókn

Við erum búnar að fara útí bæ, í gær og það kom rigning á okkur. Alex var svo yndislegur að koma á móti okkur þannig að við blotnuðum ekki alveg að nærfötum....

Amma lenti á réttum ´tíma og Alex náði í hana, gekk allt vel. Ég var búin að elda hér heima og þau voru svoooo svöng að maturinn bragðaðist vel....

Sama kvöld og amma kom var Tupperware partý hjá mér og ég græddi á því. Yndisleg hún amma, svo góð að gefa mér ostakassa.... ég sýni ykkur hann þegar ég er búin að fá hann. Hún keypti sér líka til að elda í örbylgju, svaka sniðugt.

Í dag ætlum við að skreppa til Munster, við tökum hjólastólinn með. Það er öruggara ef við skyldu versla mikið, hehe.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters