Fyrsti dagurinn
Hæ hæ, já það var fyrsti skóladagurinn hjá Nínu í nýja skólanum í gær. Gaman gaman, henni líst mjög vel á þetta allt saman og við óskum henni góðs gengis og að það verði gaman hjá henni. Hún er í sex kennslutíma á hverjum degi, 7:55 byrjar skólinn og síðasta kennslustund er til 13:05, hún er svona tuttugu mínútur á hjóli þannig að hún verður komin um hálf tvö til tvö heim alla daga.
Ég var í dag í fyrsta sinn í vinnunni eftir fríið. Ég er þá búin að vera í nákvæmlega þrjár vikur og einn dag frá vinnu. lúxus segi ég nú bara. Sigga vinkona á Íslandi var nú í 5 vikur í fríi sem er líka frábært miðað við það að vera ekki kennari. Ekki að ég sé með neitt gagnvart kennurum. Það er bara yndislegt að vera í fríi. EN nú er það harkan sex, vinna fyrir nýjum bíl, þetta gengur ekki lengur. Maður getur varla látið sjá sig á svona gamalli druslu.


4 Comments:
Frábært að vera búin svona snemma í skólanum;) Nú held ég að Snorri öfundi hana....
Þá á hún eftir að læra, á hverjum degi í fjórða bekk ca klukkutími þannig að núna gæti það orðið meira. En já þetta er frábært að vera komin heim fyrir tvö.
Hurru talandi um bíl...við vorum að kaupa okkur nýjann. Endilega drífðu i því
Ég mundi aldrei láta sjá mig á svona gömlum bíl!!!! Frekar fara gangandi
Kv. Húsavíkur móri
Skrifa ummæli
<< Home