Spekulasjónir
Já það er mikið í gangi í höfðinu á mér þessa dagana. Það er búið að auglýsa lóðir til sölu á Akranesi. Nú er spurning hvað maður geri. Slái til, sem ég reikna með. Lóðirnar eru tilbúnar í síðasta lagi í feb 2006. Sem þýðir að þá er hægt að byggja!!! Þetta er svo stutt. Margt sem þarf að hugsa út í. En spennandi, það er óhætt að segja það. Vildi bara deila þessu með ykkur.
Annars er það að frétta að síminn er ónýtur hjá okkur, þ.e. það er eitthvað ólag á einhverju millitæki frá símanum því leiðslurnar eru í lagi. Ömurlegt finnst mér og vonandi er hægt að kippa þessu fljótt í lag. Eins gott að það er í lagi með netið, annars væri ég ónýt.
Nína er sæmilega hress í sambandi við nýja skólann. Finnst óþarfi hvað hún þarf að læra mikið, ekki bara heima heldur líka í skólanum!!! Nó komment....
Fyrsti danstími okkar Alex var í gærkvöldi, það var svaka gaman. Förum yfir dansana seinna, ég vona að ég muni þessi skref á dönsunum sem við fórum í í gær þar til næst.


11 Comments:
Bara fullt að spá og spegúlera...má ekki kaupa lóð núna og byggja á henni seinna?
Annars vill ég nú bara fá ykkur hingað heim sem fyrst ... var ekki verið að auglýsa eftir hjúkkum á akranesi?
ERTu að segja satt? Já það er spurningin hvort megi kaupa og byggja eitthvað seinna, eða byrja að byggja og láta svo bíða eitthvað. Maður vill nú samt ekki vera að spyrja um alla möguleikana fyrr en maður hefur amk fengið lóð, hehe...
Takk Sigga, alltaf gaman að heyra svona, að vilja fá okkur heim.... *snökt*
Ekki spurning-kaupa lóð og byggja-er virkilega farin að vorkenna Nínu með þessi skólamál þarna, þ.a. drífa sig bara heim:). Takk f. kvittið í gestabókina, þú ert sú fyrsta (og reyndar sú eina sem hefur kvittað)
já endilega sækja um lóð, við getum byggt saman hlið við hlið :)
Við viljum fá ykkur heim sem fyrst!
kv Systa
Kaupa lóð eða ekki...allavega vil ég ég fá ykkur á Skagann, ég bið ekki um meira....;)
Ég hélt að allir ætluðu fyrst að koma til okkar í heimsókn. En víst ekki þá látum við slag standa!!! Ég hlakka til, vonandi verður Alex fljótur að byggja og VONANDI FÁUM VIÐ LÓÐ. Systa ætlið þið að sækja líka um lóð?
það kitlar flytja í tengdamömmufaðminn en það vantar víst engar hjúkkur og nokkrar sem bíða eftir að fá starf þannig að ég er svartsýn :( en mig dauðlangar og ekki verra ef þið verðið í næsta húsi :)
kv Systa
Kommen sie bitte!! Jú um að gera að koma heim.. :)
Kv. Þóra sys
Þarf ég sem sagt að fara að panta miða ef ég á að ná ykkur áður en þið komið heim?? ;)
Þú verður að láta vita strax og það er komið á hreint hvað þið gerið. Maður þarf þá að fara að plana Þýskalandsferð :)
kv. Nonni frændi
Þetta virðist vera að virka hjá þér Helga...það eru bara allir að fara að panta miða. Bara hóta að flytja heim til að fá fleiri gesti.
Annars er ég alltaf á leiðinni til ykkar aftur,þarf bara að finna tíma.
Skrifa ummæli
<< Home