sunnudagur, ágúst 28, 2005

Manfred 70

Um helgina var fjölskylduhelgi. Pabbi Alex hélt upp á 70 ára afmæli sitt. Það var reglulega gaman að fara og hitta stórfjölskylduna. Við fórum á föstud. eftir skóla og vorum komin til Eveline og Jan um kl.22. Vöknuðum hress eftir að hafa sofið út og fórum að dúllast, kaupa heftir fyrir skólann fyrir Nínu, heimsækja Schumanns og Felis var meira segja heima, gaman að hitta hann. Alex hjálpaði pabba sínum að setja upp tjald þar sem veislan var haldin. Daniel kom í heimsókn til okkar hjá Eveline og það var gaman að hitta hann. Allt á réttum vegi með endurbætur í húsinu þeirra á Vogabrautinni á Akranesi, ég hlakka til að skoða hjá þeim. Svo varð nóttin ansi löng og dagurinn í dag þeim erfiðari. Ég verð fegin að leggja höfuðið á kodda. Góða nótt.

1 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Hæ hæ
Til hamingju með tengdapabba, það hefur aldeilis verið fjör hjá ykkur, já stundum er erfiður dagurinn eftir mikið fjör ;)

Flott fjölskyldumyndin (myndin af feðgunum er aðeins hreyfð)Bið að heilsa ykkur og gangi Nínu vel í nýja skólanum.

11:40 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters