Hús og samskipti
Það er svo mikið að gera hjá okkur varðandi þetta með bygginguna þessa dagana. Alex er á fullu að teikna uppkast af húsbyggingunni okkar. Jeminn hvað þetta er gaman. Alveg nei mér finnst að þarna ætti frekar eldhúsið að vera. Eða já þetta er frábær stofa, já þetta er flott. Við viljum ekki opinbera teikninguna strax en það væri gaman að fá komment á hana. Það er bara málið hvað gerir maður, hvernig gerir maður þetta og að byrja að skipuleggja hugsanir sínar og tilfinningar. Þetta er ansi stór pakki, að fara að byggja. En rosalega spennandi. OGGGG rosalega dýrt, alltaf dýrara en maður gerir ráð fyrir, hey, takk fyrir gott ráð! Það verður gaman að sjá okkur eftir þrjú ár, já og eflaust hlægja af því hvaða áhyggjur og vangaveltur maður var með, eða réttara sagt er með í dag. Alex ætlar að byggja, hann verður á staðnum á meðan eitthvað er unnið það er á hreinu, við látum ekki gera eitthvað þegar við erum ekki á staðnum. En hvernig við nákvæmlega gerum þetta er enn óljóst. Kannski verðum við áfram hér úti, kannski flytjum við innan skamms til Íslands í leiguíbúð. Allt voða óljóst, en samt veldur það engum áhyggjum. Óvissa er óholl, það er sannað en þetta er spennandi og skemmtilegt í hugsun.
Ég var í afmæli í dag, samstarfskona sem er mjög áhugaverð og lifandi varð 47 ára. Vinkona hennar sem var í veislunni var að fá sér Au-pair stúlku frá Póllandi. Hún er óánægð með hana og var að tala um áhyggjur sínar og vangaveltur. Ég sagði við hana, ansi brött eins og ég get stundum verið þegar ég er í góðu skapi og í öruggu umhverfi, híhí. Amk sagði ég, ég ætti nú ekki í erfiðleikum að finna fyrir hana áreiðanlega, barngóða, jákvæða og lífsglaða Au-pair frá Íslandi. Ég mundi bara auglýsa í blaði og láta þær hringja í mig og svo mundum við eflaust vita um einhvern sameiginlegan einstakling og málin þyrftu ekki að vera flókin til að koma svona nokkru í kring. Kannski ætlar hún að senda stúlkuna heim til heimalands síns og hafa samband við mig. En lokaorðin í afmælinu voru þau að samskipti væru ávallt vinna og vandmeðfarin og enda ég laugardags pistil minn á þeim orðum áður en ég fer til rekkju, dauðþreytt og svekkt yfir því að geta ekki sofið út á morgun!


2 Comments:
Já það verður spennandi að fá að sjá hvaða hugmyndir þið eruð komin með í sambandi við nýja húsið :)
Bæjó :)
Þóra
Það er örugglega mjög mismunandi hvernig Au-pair eru. Maður þyrfti að vita vissar kríteríur sem væri pottþétt að líta eftir. Eða má fólk ekki velja sér stúlku?
Já Þóra það verður spennandi að sjá þetta þegar húsið verður tilbúið.
Skrifa ummæli
<< Home