sunnudagur, nóvember 06, 2005

Vinna, Danskvöld og skólaferðalag

Það er bara svoooo mikið að gera á heimilinu að það nær ekki nokkri átt.
Lúlli láttu þig dreyma um að ég segi þér hvað það kostaði.

Ég er að vinna tvölfalt enn og aftur þessa helgi, já haldið í ykkur, þessi nýja sem var búið að ráða í staðinn fyrir mig því ég sagði upp. Hún sagði upp á föstudaginn, búin að vera þrjár vikur í vinnu. Það er allt að fara til anskotans hjá karl greiinu. Vonandi áttar hann sig á að vandamálið er hjá fyrirtækinu en ekki hjá þeim sem segja upp!!!!! Mér er svosem sama, já mér er sko alveg sama. Bara leiðinlegt fyrir konuna, hún var eiginlega hrakin úr fyrirtækinu. Ótrúlega leiðinlegt mál. Ég skil ekki hvernig sumir geta haft gróða af því að vera vondir við aðra og gera lítið úr öðrum. Ég meina öll eigum við okkar góðu og slæmu daga og að það sé verið að gera svo lítið úr fólki að það fer að gráta á fundi, nei óskiljanlegt í mínum augum.

Í gærkvöldi, eftir vinnu fórum við ektamaður minn á samkvæmisdansiball. Já erum við ekki krútt. Nei við höldum ekki að við séum aðnálgast 60 aldurinn, þetta er bara ótrúlega gaman og holl hreyfing. Við dönsuðum nánast stanslaust frá 20-22:30 og var maður vel þreyttur þegar maður kom heim. Við erum í byrjendahóp í dansskóla og hittum í gær kunningja úr hópnum. Við erum að spá í að fara á áframhaldandi námskeið.... Erum við nokkuð skrýtin? Við höfum bara gaman af þessu. Vandamálið er bara það að maður hefur svo sjaldan tækifæri til að dansa þessa dansa.

Í næstu viku er Nína að fara í skólaferðalag með fjölbrautaskólanum, það fara bara tveir bekkir af fjórum saman og það verður gist í tvær nætur. Í dag þurfum við að taka það til sem á að fara með, sængurföt, hlífðarföt og svona, já pringles fer líka en það má ekki fara með kasettutæki, diskman, walkman, gsm eða tölvuspil, ótrúlega strangt. Nína er nú frekar róleg yfir þessu og er núna í sundi með Carla vinkonu sinni.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, við fórum skötuhjúin einu sinni á svona dansnámskeið og við skemmtum okkur konunglega en eina vandamálið hjá okkur var að við vildum bæði stjórna í dansinum en svona er það nú bara, mér finnst að þið eigið að skella ykkur á annað námskeið.

kveðja, Christel

3:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta með stjórnina er líka erfitt finnst mér! En Alex er svo mikið ljúfmenni og lætur sér vel við liggja að stjórna bara dansinum! Eða lætur mig halda það, hehe.

Já þetta er ansi gaman, það er líka svo gaman að vera að gera eitthvað tvö ein (með öðrum pörum) saman.
Kveðja
Helga

8:55 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

He, he, ég sæi minn mann í anda dansa samkvæmisdansa.....kannski er ekki öll von úti.....hann gæti byrjað um sextugt eins og tangdapabbi;)

1:01 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Nei þið eruð sko ekki skrýtin að vilja halda áfram og fara í framhaldshóp. Þið eruð flott saman í dansinum :)

Góða skemmtun í ferðalaginu Nína mín, verður farið til Fuck........? Með F...?

1:12 e.h.  
Blogger Helga said...

Já ferðinni er heitið til Föhkinghausen með Sebastian Fihck með í för, hún hlær og hlær hér við hliðinna á mér. Aumingja strákarnir segir hún, þeir eru bara 9 og stelpurnar 23..... Svakalega fyndið, hún vildi að ég skrifaði þetta með H en það er ekki há.

1:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Er á leiðinni,, til að kíkja á nýja tryllitækið,,, er ekki eitthvað gott í imbanum á fimmtudagskvöldum!! kv Gunna

1:42 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters