Kvefuð stelpa og mikið á dagskránni um helgina
Nína var með hita í morgun og fór ekki í skólann. Þetta litla grey er búið að liggja uppi í rúmi og vera í tölvuspili eða púsla á gólfinu í allan morgun. Svo bíður hún spennt núna eftir því að Móna vinkona komi með heimaverkefnin til hennar!!! Hugsanlega fer hún ekki í skólann á morgun en kannski á föstudag, við sjáum til.
Um helgina er mikið á döfinni hjá okkur. Matthias og fjölskylda eru að koma á föstudaginn og ætla að vera hjá okkur fram á sunnudag. Það verður gaman að hittast, við hittumst allt of sjaldan, það eru allir svo uppteknir í lífinu. Á sunnudaginn fer ég svo í saumaklúbb til hennar Svölu með Þórunni og Ingu Björk. Það verður gaman að hitta íslensku saumakonurnar aftur eftir langt hlé.
Annars er veðrið frekar leiðinlegt eins og er, hlýtt, alveg 5-6 stig en grenjandi rigning og búin að vera í allan dag. Eins gott að sitja bara yfir bókunum og reyna að vera duglegur að lesa fyrir föstudagstímann. Ég er svo óörugg í tímanum en við erum að æfa fyrir munnlega hlutann og mér finnst þetta mjög erfitt. Ekkert nema utanbókarlærdómur og það er ekki alveg mín sterkasta hlið en er alltaf að batna, hahahaha......


3 Comments:
Æi, alltaf svolítið fúlt að vera veikur en það getur samt líka verið notalegt að múlta heima ef manni líður ekki allt of illa. Snorra finnst það allvega, en hann er líka með þvílíkan skólaleiða:o/
Góðan bata og góða skemmtun um helgina;)
skilaðu "batna" kveðjum til Nínu frá okkur Jóa, hann hlakkar svo til að hitta hana um páskana :)
kv Systa
Það getur stundum verið ágætt að vera heima en einhverntíma saknar maður samt félaganna. Nína bíður bara eftir því að komast í íslenskan skóla.... látum það nægja um skólaleiða á þessum bæ.
Kveðja Helga
Skrifa ummæli
<< Home