sönglagatíska
Ég leit örstutt á lögin sem voru sýnd í kvöld í sjónvarpinu.
Hvað er þetta með gull og silfurbelti..... er þetta tíska?
Mamma áttu ekki ennþá gull og silfur plast beltin sem við
börnin þín notuðum í leikjum þar til fyrir skömmu?
Það er ákkúrat eins og þær voru með dans og söngvameyjarnar
í lögunum í kvöld....
Minn smekkur er þetta ekki, það er nokkuð ljóst.....


5 Comments:
Ææææ, ég er búin að henda beltunum. Sumir hafa nú verið að hvetja mig til að henda ýmsu, sem ég hlusta sjaldan á, en þó í eitt og eitt skipti. Þetta var eitt af þeim. Staðreyndin er sú, að allt virðist koma aftur í tísku það tekur bara mislangnan tíma.
Vonandi batnar Nínu, ég bið að heilsa.
voðalega ertu eitthvað halló!!!!!??
kv. Húsó
Ég held að besta ráðið sé að taka tískunni mjög varlega, þá losnarðu við hallærislegar myndir af þér;)
Annars er Júróvisjón bara einn brandari og löngu hætt að snúast um tónlist. Ég horfi samt alltaf á það!!! Tískan þar er líka mjög ýkt sbr. Gleðibankinn;)
Já það er satt, mér finnst íslensku lögin nú svona sæmileg en guð minn góður hvað Þjóðverjar eru búnir að koma með af lögum upp á síðkastið....
Nú er það ljóst, Sylvía Nótt mun "auka" hróður Íslands í Aþenu í vor, hóst, hóst :-)
Skrifa ummæli
<< Home