Sommertime
Þá er kominn sumartími. Í nótt varð klukkan þrjú þegar hún hefði átt að verða tvö. þannig að nóttin er klukkutíma styttri. Þá er ekki eftir neinu að bíða sumar, þú mátt koma úr felum! Þannig að Ísland það er núna tveggja tíma munur!
Ég var í kveðjuhófi í skólanum og eftir það fórum við sex af tíu út að borða og höfðum það huggulegt. Ó venjulegt að ég sé að koma heim svona seint. Enginn heima nema ég og öll tuskudýrin hennar Nínu, hún setti hundinn Rex í rúmið hjá mér þannig að þegar ég vakna og ætla mér að líta á þann sem passar mig þá sé ég Rex. Fallega gert finnst ykkur ekki.
Á morgun er svo vorhátíð niðrí bæ, fullt af stöndum þar sem blóm, sokkar, dúkar, undra grænmetisskerar, buddur, úr og fleira verður selt. Kannski maður kíki ef það rignir ekki eldi og brennisteini en það lítur allt úr fyrir það! Góða nótt og sofið rótt..


3 Comments:
Það er nú gott að vita að han Rex passar þig;)
Það vantar ekki upp á öryggið, híhí.
Helga
Kúl... þá er allaveganna klukkutíma styttra í að þið komið heim! :)
Skrifa ummæli
<< Home