Komin heim í heiðardalinn
Já við fjölskyldan erum komin heim, við komum um hálf sex í kvöld eftir 12 tíma ferðarlag rúmlega. Það var rosalega gaman á Íslandi og við náðum að redda ýmsu fyrir ´húsbyggingu okkar, en það var nú markmið með ferðinni ásamt því að hitta vini og vandamenn.
Nína varð 11 ára í ferðinni, hún átti afmæli á páskadag en hún fæddist einmitt á páskadag og við héldum smá páskaafmællisveislu með fjölskyldunni. 'Oli bróðir varð 28, Aggi varð 51, Silli varð 32, Nonni varð 29 og svo mætti lengi telja.
Ég skrifa meira á morgun, ætla aðeins að móta sófafarið mitt í stofusófanum og lúra þar á góðkunnum stað.....
Lifið heil og sofið vel ykkar
Helga


3 Comments:
Takk fyrir síðast, ofsalega gaman að sjá ykkur. Til hamingju með stelpuna um daginn....
Til hamingju með afmælið Nína(-:
Það var æðislegt að heyra í ykkur á meðan þið voruð hér, þó það hefði verið skemmtilegra að sjá ykkur- en bara
næst(-;
kv.GBB
Takk fyrir hamingjuóskirnar stelpur.
Inga mín, við verðum að gera eitthvað í því bráðlega að hittast. Nei það hefði ekki borgað sig fyrir ykkur að koma við því við vorum ekki heima.
Saumó er næst hjá þér, það er gott, er komin dagsetning, ég sting upp á 21.mai, sunnudegi ef það er möguleiki hjá þér. Seinustu helgina get ég ekki og fram að helginni 20.-21. er ég upptekin. Bestu kveðjur Helga
Skrifa ummæli
<< Home