þriðjudagur, apríl 25, 2006

Íslandsdvöl okkar í apríl

Við lögðum upp í langferð til Íslands eftir einungis næturdvöl á heimili okkar eftir 4 daga frí í Leipzig. Leipzig var mjög áhugaverð borg og við Nína gerðum okkur glaðan dag með því að versla, fara í bíó, fara í göngutúra og skoða okkur um, fara á leikrit með óperusöngvörum, slappa af og fara í sund í Magdeburg. Mjög mikil uppbygging á sér stað í Leipzig og eru mjög margar götur lokaðar vegna vegavinnu og á mörgum stöðum í bænum standa stillasar þar sem verið er að vinna við hús. Margar flottar gamlar byggingar eru glæsilegar eftir mikla og dýra uppbyggingu í bænum, vel þess virði að heimsækja Leipzig við tækifæri.

Frábært gluggaveður tók á móti okkur á Íslandi, sól, kalt og svaka útsýni. Mamma og Þórður komu að sækja okkur út á flugvöll og við brunuðum beint í Smáralindina til að versla hlaupaskó fyrir íþróttamanninn í fjölskyldunni. Hvergi betra að versla en á Íslandi, NOT.... en maður verður að gera það sem maður verður að gera, er það ekki annars. Svo fórum við í stutt stopp til í stúdentaíbúð Óla og Karenar, íbúðin er á efstu hæð, með mikið af vegghalla, þakhalla eða hvað maður kallar það. Það væri skemmtilegra að vera með minni vegghalla en íbúðin er björt og nóg í bili. Þau reikna ekki með að stoppa lengi í þessari íbúð. Það sem skemmtilegt er, er að Hlynur Björn er kominn með eigin rúm og honum finnst það æðislegt, enda fátt eins mikilvægt og að eiga rúm hjá pabba sínum. Við héldum svo saman á Ítalíu þar sem slegið var upp heljarinnar kvöldmat með Ömmu Lillu, Mömmu, Þórði, Mér, Alex, Nínu, Óla, Karen, Hlyni Birni, Þóru og Atla. Það var æðislegt og gaman að hitta ömmu því hún fór svo til Frakklands með Magga frænda daginn eftir þannig að við hittum hana ekki neitt meira það sem eftir var af ferðinni.

Föstud. komu Anna Sigga, Ragnar Stefán og Hekla í heimsókn, við fórum í göngutúr í týpísku íslensku veðri, roki, sól, snjókomu og skafreningi til þess að skoða lóðina okkar. Þeim leist bara vel á. SVo fórum við í kaffiboð til Önnu og Daniels Schnell á Vogabrautina á þeirra nýja heimili, fórum saman í göngutúr út í Kalmannsvík.

Á laugard. lögðum við upp í innkaupaferð til Borgarnes en þar er Bónusverslun. Eftir að hafa kíkt í heimsókn til Heiðrúnar og Kristleifs og skellt okkur í sund á Akranesi sem er alltaf jafn fínt. Um kvöldið var svo fjölskyldumatur hjá Mömmu á Jörundarholtinu með systkinum mínum og fjölskyldu Óla.

sunnud. Afmæli Nínu og Páskadagur, Nína fékk fullt af flottum gjöfum og var mjög ánægð með daginn, sameiginlegur kvöldmatur aftur um kvöldið. Við skipulögðum smá páskaleik, allir fengu páskakörfu ala Þýskaland með litlum sætum eggjum í og einu páskakerti, krakkarnir fengu páskagjafir, páskahéra, Íslenskt páskaegg frá ömmum sínum og pening, svaka gjafir alveg enda voru þau ánægð með sitt. Nína fékk að fara á hestbak hjá pabba Eyglóar vinkonu Þóru uppi í hesthúsum á Akranesi, það var svakalega gaman og spennandi að sjá þetta allt þar.
Mánud. Við kíktum í heimsókn til Mjallar og Silla á Einigrundinni og spjölluðum heillengi við þau. Eftir það fórum við í göngutúr og var förinni heitið til Ernu og Halla á Vesturgötunni, veðrið var frábært og Nína var spennt fyrir því að hoppa með stelpunum þeirra á trampólíninu í garðinum og leika við hundinn þeirra Heru.
Þriðj.Við fórum í bankann og ræddum við bankastjórann, kíktum í Húsasmiðjuna og fórum í ljósmyndatöku til Reykjavíkur og enduðum daginn á að borða með Agga en hann átti afmæli einmitt þennan dag og það var mjög ánægjuleg stund sem við áttum saman.
Miðv. förinni heitið til Reykjavíkur á Árshátíð Hjúkkubrunchara úti á Álftanesi, glæsileg skemmtun, frábær matur, skemmtilegt fólk og bara gaman.
Fimmtud. Óli og Nonni afmæli, Við kíktum til Valla og Dóru í kaffi og fórum svo niður á langasand til að sjá hestamannafélagsaðila koma ríðandi á hestum sínum, það var ansi gaman að hitta Rósu mömmu hans Hafsteins Gunnars. Hún leyfði Nínu að fara á hestbak á sandinum og Nína var rosalega lukkuleg með það, reið fram og til baka eftir langasandinum. Ingi STeinar tók flottar myndir sem ég ætla að setja hér inn. Um kvöldið var svo tekið í spil, Kani varð það heillin en það er alltaf jafn gaman að spila við mömmu og Þórð, heillar minningar frá Svíþjóð í fyrra.
Föstud. var förinni heitið í Grundaskóla kl.8. Nína kynntist kennurum 5.bekkjar, þeirra árgangs sem hún mun fara í á næsta ári og ung dama sem heitir Ingileif var svo elskuleg að vera með Nínu. Við fengum að skoða skólann saman, það er nú meira hvað þetta er glæsilegt á Íslandi með skólamál, það verður gaman að koma úr þýskum skóla í svona flott umhverfi. Nína varð spennt og var feiminn á meðan við vorum að skoða, varð svo eftir í einn smíðatíma en ég sótti hana um 10. Það er þá búið að brjóta ísinn og nú veit hún á hverju hún á von á. Kannski fer hún í sama bekk og Hallur Freyr er í en hún þekkir engann í þessum árgangi. Eftir það fórum við til Bjarna Vé, hann er að gera teikningarnar fyrir okkur, þaðan héldum við til Keflavíkur til að hitta þá sem selja okkur plasteiningarnar sem við væntanlega endum á að kaupa til byggingar hússins. Þaðan svo til Hafnarfjarðar að hitta smiðinni sem ætlar að reisa húsið fyrir okkur. Þaðan í smáralindina og svo enduðum við í grilli hjá Óla með nýja grillið og nýja gítarinn. Það hefði mátt fjölga aðeins stólum í íbúðinni en af öllu öðru var meira en nóg og var þetta vel lukkað kvöld eftir að krakkarnir voru sokknir í teikningar.
Á laugardeginum fórum við í heimsókn til Önnu Bjarkar, þaðan til Heiðrúnar og fjölskyldu, þaðan til Sigga í pípó og þaðan heim að pakka og enduðum þessa Íslandsdvöl á því að borða dýrindis pizzur á Galito, mæli eindregið með þeim.
Á sunnudeginum var förinni svo heitið á flugvöllinn eftir vel heppnaða dvöl á Íslandi yfir páskana og við keyrðum í gegnum snjó, rigningu, rok og nefnið það á leiðinni en Atli færði okkur heil á húfi á flugstöðina þar sem við héldum förinni til Amsterdam.

Ég hefði viljað gera svo margt meira, hitta fleirri oftar og gera meira en tími og orka leyfðu það ekki. Þetta verður bara tekið næst, þá komum við sennilega í lengri, lengri tíma..... læt þetta duga í bili, tel það gott ef einn nennir að lesa í gegnum þessa hrúgu af upplýsingum....

3 Comments:

Blogger Bippi said...

Halló kæra fjölskylda!
Það var frábært að hitta ykkur þó stutt væri;o)
Ég var í Grundaskóla í gær og kennararnir báru henni Nínu mjög vel söguna. Sögðu að hún væri dugleg og mjög sjáfstæð í vinnubrögðum og þau hlakkar til að fá hana í skólann!!!

4:16 e.h.  
Blogger Sigga said...

Juminn það hefur aldeilis verið nóg að gera hjá ykkur.
Gaman að hitta ykkur þó stutt væri, en það fer nú að styttast í að þið verðið bara ein göng í burtu!

7:13 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já það fer aldeilis að styttast í mann, ég fer að geta krossað við dagana sem líða.... Kannski aðeins of snemmt.
Gaman að heyra að kennararnir hafi verið hrifnir af Nínu, hún var mjög ánægð með daginn í skólanum þótt stuttur væri.
kveðja Helga

7:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters