laugardagur, apríl 08, 2006

Flaut

Það er alveg merkilegt hvað Nína getur flautað stundum. Þá er ég að meina það þegar það er verið að flauta eitthvað með vörunum, það getur verið laglína eða bara einhver vitleysa sem kemur, hver þekkir þetta ekki. Hún flautar þegar hún vaknar og sérstaklega flautar hún af ákefð þegar hún kemur heim úr skólanum, alveg fullum hálsi ef þið skiljið hvað ég meina. Þetta er svo fyndið en stundum er ég alveg komin með nóg, þegar hún er að borða og flautar þar til gaffallinn kemur inn í munninn..... Svo er flautað þegar hún er að læra sem er daglega allt að tveir tímar í heimanám, þegar maður er að hjóla og bara nefnið það. Oft finnst mér eins og þetta sé stressmerki en hún er svo ánægð þegar hún flautar þannig að ég held ekki lengur að þetta sé stress, heldur einhver innri gleði sem brýst út.

Nágranni okkar, tæplega 40 ára, bankastarfsmaður er líka svona, hann flautar svo hátt að það heyrist á milli veggja. Hann flautar alltaf þau lög sem eru á þeim og þeim tíma mikið spiluð í útvarpinu og það er mjög vel gert hjá honum. Það er spurning hvaða innri hvöt þetta er hjá þessum einstaklingum. Þessi maður er mjög íþróttalegur, barnlaus og viðkunnalegur. Nú verður gaman að fá greiningu!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Veistu nú stend ég á gati.. flautar maður ekki bara þegar maður er ánægður eða eitthvað svoleiðis. Ég flauta alveg reglulega.. þegar ég er að ganga í skólann eða eitthvað svoleiðis en.. ji minn ég hef ekki spáð í því hvers vegna maður gerir það!

:) Kannski er þetta bara hóflegur söngur.. Maður fer kannski ekkert endilega að syngja af lífs og sálar krafti heldur grípur maður í það næst besta?!

B.kv. Þóra

1:55 e.h.  
Blogger Helga said...

Þetta er kannski merki um tónlistarhvöt?
kveðja Helga

2:17 e.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Ég held að þetta sé mjög gott ef hún gerir þetta af og til af því að tónlistin er svo holl fyrir líkama og sál og sérstaklega ef maður getur framleitt hana (meira að segja að prumpa þjóðsönginn!).
Hlynur er svona líka... kennarinn hans kvartaði undan því um daginn að hann trufli aðra þegar hann er að dunda sér eða að læra og sönglar á meðan. Ég held að þetta sé frekar merki um jákvæða einbeitningu því að ekki er maður að vesenast með að flauta þegar maður er stressaður... Þetta er kannski eitt form ómeðvitaðra aðgerða hjá manni... gæti kannski flokkast undir neikvætt að taka ekki eftir því sjálfur... þó svo að ég sé reyndar ekki á því.

4:07 f.h.  
Blogger Bippi said...

Mér finnst þetta á allan hátt jákvætt. Þarna er hún að tjá sig í gegnum flautið. Það er líka list að geta flautað flott. Vildi að ég gæti það. Ég er samt alltaf sönglandi og Snorri þarf stundum að klípa í mig í Einarsbúð því að ég tek ekki eftir því sjálf!!!! ;o)

HAltu bara áfram að flauta Nína mín;)

Vá það er nú meiri dugnaðurinn í honum Alex. Bippi er á fullu að hlaupa þessa dagana svo að hann geti haldið í hann um Páskana;)

12:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters