Akranes city og amma Lilla
Ég vil byrja á því að tilkynna það að amma Lilla á amæli í dag, það þýðir ekki að senda henni kveðjur hér því hún er ótölvuvædd. Hún er eflaust í iðjuþjálfun á Dvalarheimilinu fyrir hádegi en heima hjá sér eftir hádegi. Hún ætlar að fara að leggja land undir fót og skreppa í vikudvöl með elsta syni sínum og fjölskyldu hans og tengdaforeldrum hans til Frakklands. Hún er ekki smeyk við að skella sér til útlanda þegar að því kemur í seinni tíð. BAra gott af því að segja enda erfitt þegar maður er einn og vantar annars driffjöður til að komast af stað í heimsóknir innanbæjar og annað slíkt. Svo kemur hún eflaust til mín í heimsókn í haust, ég amk undirstakk hana með því að hún gæti nú kannski boðið Þóru með sér til að hún sé ekki ein á ferðalaginu.´Gaman að þessu öllu saman.
Svo langaði mig að fara stuttum orðum um það að Akranes er alltaf að stækka. Það er líka gott að búa á Akranesi, nálægðin í alla þjónustu og verslun er það sem Akranes hefur fram að bjóða í samanburði við Reykjavík. Fyrir utan hve góður andi er yfir bænum og gott loft! Falleg sandströnd, fagurt Akrafjallið blasir við og á góðum degi má sjá Snæfellsjökul og allt til Keflavíkur. Nýverið var verið að úthluta 61 byggingarlóð til húsabyggða en fyrir hálfu ári fengum við okkar lóð úthlutað og þá voru alls 26 aðilar sem fengu lóð. Þannig að það er aldeilis mikið í gangi á Akranesi þessa dagana. Bónus ætlar að reisa verslun og Krónan skilst mér líka. Fólksfjölgun hefur verið óvenjumikil í vetur þar sem fólksfjölgun er vanalega á sumrin. Allt þetta og meira til má lesa á www.Akranes.is Gera má ráð fyrir að fólksflutningar séu töluverðir frá Reykjavík en fasteigna og lóðaverð er ekki nærri eins hátt á Akranesi og í Reykjavík og nú er fjarlægðin ekki mikið lengri frá Akranesi en t.d. Hafnarfirði til Reykjavíkur. Margir íbúar búsettir á Akranesi sækja vinnu sína til Reykjavíkur og um ára mótin hófust strætóferðir á milli Akraness og Reykjavíkur fyrir einungis 250 krónur, í strætó fær maður skiptimiða og getur farið hvert sem hugann dreymir í Reykjavík fyrir einungis 250 krónur. Vissulega er hægt að spara með því að kaupa mánaðarkort og slíkt fari fólk með strætó til vinnu sem borgar sig örugglega. Það verður spennandi að flytja til Akraness og kynnast öllu því fólki sem er nú flutt til Akraness en það eru tíu ár síðan ég bjó seinast á Akranesi.
Þóra og Nonni eru í prófi í dag, hrrkkk tuff, tuff, tuff.....
Svo er stefnan tekin á Leipzig á sunnudag fram á miðvikudag og flug til Íslands á fimmtud. það er nóg að gera hjá manni, enda lifir maður bara einu sinni, ekki satt!


6 Comments:
Ég hlakka svo til að hitta ykkur og Bippi býður spenntur eftir að hlaupa með Alex;)
Jú, Skaginn breytist ört og mun örugglega gera það næstu árin. Mér finnst allavega mjög gott að búa hérna. Frábært að vera með börn, þau hafa möguleika á að stunda íþróttir og tónlist og geta sjálf komið sér þangað. Svo er nú líka mikils virði að hafa fólkið sitt í kring um sig!!;)
Já það er satt með fjölskylduna, það er ómetanlegt.
Já það verður gaman að hittast eftir nokkra daga.
Kveðja
Helga
Takk fyrir.. og flott af þér að benda ömmu á að við gætum farið saman. Það er nefnilega alls ekki svo vitlaus hugmynd :)
Ég hlakka svo til að sjá ykkur að þú tryðir því ekki þótt ég segði þér það!! Í ALVÖRUNNI :D
Bið að heilsa
Þóra
Góða ferð kæra fjölskylda, hafið það gott á skaganum í faðmi fjölskyldu og vina.
kveðja
Christel
Þetta er aldeilis að styttast, bara vika í dag þar til þið komið. Já þetta var fín hugmynd hjá ömmu þinni að hittast í Rvík á leiðinni uppá Skaga.
Ég hlakka æðislega til að sjá ykkur og myndirnar af prinsinum ;)
Takk fyrir Christel, það verður gaman að koma á Skagann.
Já mamma, alltaf að styttast, líst mjög vel á hitting í bænum.
Skrifa ummæli
<< Home