Bitin kona í útlöndum
Það fór illa með hana móður okkar, hana Siggu í fríinu á Ítalíanó. Hún var að hringja í mig rétt í þessu, blessunin, eftir að hafa lent á sjúkrahúsi á Ítalíu þar sem engin talar svo mikið sem stakt orð í ensku eða öðrum skiljanlegum tungumálum. Haldið að hún hafi ekki verið svona illilega bitin af moskítóflugum og það ekki sú eina í hópnum. Fræðilega var búið að finna það út að þær í hópnum sem voru í blóðflokki O voru allar stungnar, ein önnur ásamt mömmu þurfti að fá aðstoð á sjúkrahúsi. Mamma fékk einhverja glás af meðölum með sér heim af sjúkrahúsinu og vildi bara fá smá upplýsingar hjá hjúkrunardóttur sinni um hvaða lyf þetta væru. Sýklalyf, kláðalyf, verkjalyf og hreinsilyf, en skrýtið að hún hafi ekki fengið stera.... það hefði verið ágætt. Blessunin hún er kvalin í svoleiðis steikjandi hita sem er ekki í uppáhaldi hjá henni en heimför verður á sunnudag, það er eins gott að hún rauðblettótt elskan haldi þetta út þangað til. Annars verður hún bara að fara aftur á sjúkrahúsið.....


1 Comments:
Hún er nú töluvert skárri í dag blessunin. Bólgan og roðinn aðeins að láta undan. Eins gott að hún sé að koma heim á morgun. Bara að Starrinn taki ekki við Moskító þá.... þennan punkt kom Óli með en mamma er vel liðin af alls kyns bitdýrum
Skrifa ummæli
<< Home