Gleðilega þjóðhátíð
Hæ hó jibbý jei og jibbýi jei, það er kominn sautjándi júní.
Gleðilega þjóðhátíð kæru félagar.
Við notuðum tækifærið og gerðum okkur glaðan dag í Hollandi, fórum þar á markað og í búðir... mjög gaman að gera eitthvað í tilefni dagsins. Hér var ekkert kvennahlaup amk ekki svo ég hafi tekið eftir því, enda hefði ég ekki verið góð í því með mína fílafætur. Tökum það með trompi á Íslandi á næsta ári.
Á morgun koma svo fjölskylda Þórunn og Andrés í þjóðhátíðarmat til okkar en það er spáð bombu veðri. Eins gott að væta sig nóg að utan og innan.
England stóð sig vel, til hamingju Svana, það verður brjálæðislega spennandi ef England og Þýskaland lenda saman. Við erum hér með ansi skemmtilega stigatöflu og Nína sér um að færa allar niðurstöður inn á plaggið, svaka ábyrgð sem hún er með stúlkan. Annars tók ég eftir því að það eru ekki allir jafn spenntir yfir boltanum og ég, Amma Lilla og mamman á Hvítanesi.... Amma Lilla er með sýn, bara til að horfa á leikina og það er mamman á Hvítanesi líka, langt yfir níræð konan, búsett á dvalarheimilinu, stendur sig vel konan. Svo er bara að sjá hverjir eiga eftir að bera sigur úr vítum. Ég efast um að það verði Þjóðverjar og Englendingar en vil ekki skjóta á Argentínu heldur þótt þeir hafi unnið einn leik þarna 6:0. Sorrý Krissý en ég hef ekki heldur mikla trú á Áströlum, við verðum aðeins að sjá hvernig undanúrslitin eiga eftir að koma út, þá fer ég kannski nánar út í þetta. KAnnski maður verði svo kaldur að fara í veðbanka eins og Svana gerði en nei ég held ekki, ekki alveg ég.....
Eigið góðan dag og góða helgi kæru félagar
Svabbi og Þórey til lukku með brúðkaupið ykkar í dag.....
Inga Martha til hamingju m eð afmælið í dag.


1 Comments:
Já það eiga nú sjálfsagt ekki margir von á því að Ástralirnir vinni en það yrði stór-sigur fyrir þá að komast uppúr riðlakeppninni. Ég og mín fjallafjölskylda létum okkur hafa það að vakna kl. 02:00 til að horfa á okkar menn tapa fyrir Brasilíu:0( En svo verðum víst í flugvél þegar þeir spila leikinn sem ákveður hvort þeir komist áfram eða ekki og sennilega er ekki boðið uppá beinar útsendingar þar. Það verður ljúft að komast heim og geta fylgst með þessu á kristilegum tímum og þá get ég spáð betur í það með þér hverjir verða heimsmeistarar.
Láttu þér líða vel xxx
Skrifa ummæli
<< Home