föstudagur, júlí 28, 2006

Fyrsta almennilega rigningin og íþróttadóparar

Ég átti nú erfitt með mig hér eftir fyrsta almennilega vatnsgosið sem við fengum sem var reyndar í fyrradag. Já það byrjaði seint um kvöld og stóð í ca 15 mínútur.... rafmagnið fór af, blómin fóru á skrall í garðinum okkar og stólar, buslulaug og annað lausadót fannst kominn tími til hreyfings. Ég sat hin rólegasta við matarborðið (læt fátt lokka mig þaðan eins og er) og horfði á þennan dans hinna ýmsu hluta sem eru hjá okkur í garðinum og sendi Alex og Nínu að bjarga okkar hlutum. Jóseph nágranni var líka á fullu að bjarga því sem hægt var að bjarga. Svo kom þessi líka helli rigning og þrumur og eldingar, alveg eins og í bíómynd, þar sem hellt er úr fötu ofan af þakinu, ég get svarið það. Ótrúlegt alveg. Alex var á fullu að bera allt inn og ég lét ekkert stela ró minni við að borða kvöldmatinn sem bragðaðist hreint ágætlega í myrkrinu.

Stuttu seinna fer Nína út til vinkonu sinnar og þegar hún kemur aftur segir hún ÞAÐ ER BARA EINS OG GUÐ HAFI VERIÐ AÐ PISSA, ÞAÐ ER SVO MIKIL PISSULYKT ÚTI!!!! Já þá var búið að safnast svo mikil drulla í loftinu að það náði ekki einu sinni að hreinsast betur en svo að upp gaus þessi ofursterka Klóaklykt eins og hún gerist best..... við auðvitað guðslifandi fegin að fá smá kælingu (opnuðum alla glugga upp á gátt), sem var reyndar frekar eins og hellt hefði verið vatni á gufusteina því svoleiðis gaus upp rakinn, að húsið angaði allt af klóaklykt... Já svona er lífið í hitanum!

En mig langaði bara að lýsa yfir miklum vonbrigðum með suma af bestu íþróttamönnum í dag að þurfa endalaust að vera að dópa til að komast á verðlaunapall. Já þeir sem hafa fylgst með Tour de France, hafa eflaust tekið eftir því í fréttum að sigurvegarinn verður látinn skila sæti sínu þar sem komið hefur í ljós að hann dópaði með testósteróni. Greiið var alltaf sagt hér, hann átti erfiðan dag og daginn eftir gaf hann allt því eflaust væri þetta síðasta keppnin sem hann tæki þátt í útaf veikri mjöðm. Já það var nú meira greiið, bara lét sturta í sig testósteróni og var svo sigurvegari... ef maður er ekki meiri maður en það að maður þurfi að dópa til að komast á verðlaunapall þá ætti maður nú að fara að hugsa sinn gang.... Langaði bara aðeins að tjá mig um þetta... finnst þetta af lélegustu sort og alls enginn íþróttahugur.

6 Comments:

Blogger Systa said...

ég sé að það er ekki alslæmt að hafa rigningu annanhvern dag hér á Íslandi. Engin pissulykt hér ;)

12:10 e.h.  
Blogger Helga said...

Það er alltaf hægt að finna eitthvað jákvætt ekki satt Systa, góður punktur! Annars er gestaherbergið laust til 10. ef það lokkar!!!

1:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Guð hafi verið að pissa :) Nína er alveg kostuleg he he. En ég get ímyndað mér nú samt að þó að pissufýlan hafi verið til staðar að þá hafi það verið ansi hressandi að fá smávegis kælingu. Í þessum hita sem er búinn að vera í allt sumar.

Jæja, bið æðislega að heilsa í bili.
B.kv. þóra sys

3:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Var einmitt að horfa á fréttirnar í gær um þennan hjólagaur og að Þýskaland væri að þorna upp-þannig að tími kominn á rigningu en kannski ekki svona. Til hamingju með afmælið um daginn Alex, greinilega fleiri en ég sem vildi fá Balthasar í afmælisgjöf. Kveðja Hildur

4:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Við urðum nú ekki svona vör við rigningu hér enda er allt að skrælna hér hjá okkur, rigndi reyndar í gær akkurat þegar við vorum með fullt hús af börnum í afæmælisveislu hjá Hervari okkar, týpískt:)

Ég er alveg sammála þér með þessa íþróttamenn, ekki hægt að segja að þeir séu góðar fyrirmyndir fyrir ungu kynslóðina þegar svona kemur upp, finnst þeir ættu að skammast sín fyrir að skemma ímyndina fyrir öðrum íþróttamönnum.

kveðja Christel

9:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Great site lots of usefull infomation here.
»

9:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters