mánudagur, ágúst 21, 2006

Mamma

Kemur á morgun, það verður æðislega gaman að fá þau í heimsókn, mömmu og Þórð. Þau keyra frá Danmörku á bílnum sínum með nýja navigation tölvuna sína. Það er örugglega frábært að keyra með svona sístem í bílnum sínum. Ég tala nú ekki um þegar maður er óvanur að keyra á hraðbrautunum hér í Þýskalandi. Það er bara um að gera að láta ekki æsa sig útí einhverja hraðakeyrslu á tveggja til fimm akgreina hraðbrautunum hér. En þetta venst samt rosalega fljótt, maður verður bara að halda sínu striki í þessu og ekki verða óstyrkur. Líka er mikilvægt að gera hlé og fá sér kaffi, fara á klósettið og svona og vitanlega að keyra ekki þreyttur.

Svo er nóg að gera það sem eftir er vikunnar, mömmuklúbbur á miðv. hjá mér, það eru stelpurnar sem voru með mér á undirbúningsnámskeiðinu, sá fundur er hjá mér. Svo klipping seinnipartinn á miðv. ohh hvað ég hlakka til að fara í klippingu, ég er næstum komin með jafn sítt hár og þú Þóra, alveg ótrúlega sítt, bara alls ekki ég einhvernveginn. En það breytist á miðv.
Já og fimmtud. er annar mömmuklúbbur, það er svona námskeiðsklúbbur og er á vegum svona tómstundaskóla hér. og svo grillveisla í skólanum hennar Nínu á föstud. og svo förum við í átt að Frankfurt snemma á laugardag til að hafa skírnina á sunnudag. Gaman, gaman.... semsagt nóg að gera hjá okkur í bili. Svo held ég að næsta vika sé bara róleg. Enda veitir þá ekki af, ekki satt.

Í dag á hún Svala KAstenholz afmæli, til hamingju Svala mín, en mér þykir leitt að það næst ekki í sumargrill í sumar, við tökum kannski bara haustgrill í staðinn. Hún Svala er ættuð frá Leirágörðum og er þannig tengd mér tilfinningaböndum þar sem einn fjórði af mér er jú frá Leirá.

Koss og knús frá okkur hér á Wertchenstrasse

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Alltaf gott að hafa nóg að gera svo ég tali nú ekki um að fá mömmu í heimsókn...bara góðir dagar framundan. Mundu svo eftir að sitja mynd af nýju klippingunni inn:)
Knús frá Ástralíu

3:01 f.h.  
Blogger Helga said...

Spurning hvort maður þurfi ekki að gera meira en að fara í klippingu ef ég maður á að fara að sitja fyrir í myndatöku.....

Geri það Krissý mín...
Samt ótrúlegt hvað maður breytist aldrei, alltaf sama skutlan, hmmhmmm

2:18 e.h.  
Blogger Silja said...

Thad er skrytid hvad litlir hlutir geta glatt mann, eins og thad ad fara i klippingu. Madur fer i soldinn 17.juni filing, nyklipptur og svaka finn.
Meiri kvedjur fra Astraliu.

8:51 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters