Langaamma mín, hún amma Lilla prjónaði þetta ullarsett á mig, sem betur fer!! Því það er búið að vera þannig veður undanfarið að það hefur ekki veitt af því að eiga gott ullarsett til að bregða sér í þegar maður fer í vagninn.
Ég tek undir það með þér, sama hvort það er prjónað eða af annari sort. Það eru listaverk sem koma í ljós þegar maður á heiðurinn af því að eignast eitthvað heimagert.
Ég er ung stelpa á besta aldri sem hefur áhuga á öllu í kring um sig. Sem hefur gaman af því að leggja land undir fót og skoða nýja hluti. Ég er opin og félagslynd og hef gaman af því að vera í félagsskap.
4 Comments:
Mér þykir alltaf svo vænt um allt sem er hjemmelavet. Prjónakonur finnst mér vera algjörar listakonur!
Ég tek undir það með þér, sama hvort það er prjónað eða af annari sort. Það eru listaverk sem koma í ljós þegar maður á heiðurinn af því að eignast eitthvað heimagert.
Sá er fínn í fötunum, verst er að amma þín getur ekki séð þessa mynd af Balthasar.
Það var gaman að heyra í þér í gærkvöldi Helga mín:)
Hvað er í gangi frú Sigríður, það eru fleiri sem fylgjast með Eck fjölsk.Hún getur séð myndirnar hjá mér. K.kveðja til ykkar allra.V
Skrifa ummæli
<< Home