Þá er það ákveðið
skírt verður úti í guðsgrænni náttúrunni, já við Patershauser hof, í Heusenstamm þann 27.ágúst 2006. Þetta er útiguðsþjónusta og við erum yfir okkur ánægð með þetta. Þegar ég var ung og fríð (nú er ég bara fríð) og skiptinemi hjá fjölskyldu Schumann, þá var ég oft þarna, það er lítið vatn þarna nálægt þar sem fullt er af froskum og þar lá ég í grasinu og las í bók. Hve yndislegt getur lífið verið við mann þegar maður er áhyggjulaus og getur legið í guðsgrænni náttúrunni. Það er bara frábært. Við Alex áttum líka góðar stundir þarna á túnunum þar sem við ræddum allt milli himins og jarðar nokkrum dögum áður en ég hélt heim á leið eftir ár á vitum ævintýranna í Þýskalandi, þetta var skemmtilegur tími, það get ég sagt ykkur. En þetta með skírnina er semsagt ákveðið, presturinn sem heldur guðsþjónustuna er kona og Alex þekkir hana mjög vel, ég þekki hana reyndar líka og hún er mjög fín. Eftir athöfnina á svo að borða saman með fjölskyldunni en mamma og Þórður verða einmitt hérna hjá okkur í heimsókn þá.


2 Comments:
En spennandi! Þið verðið að láta taka helling af myndum svo maður getu skoðað;o)
Ohhhh þetta verður örugglega yndislegt!!
Bið að heilsa :)
Skrifa ummæli
<< Home