kólnandi veður
Hæ hæ allir saman,
loksins er aðeins búið að kólna hjá okkur, rigning af og til og smá gola sem leikur um loftið.
Það er nú léttir, nú get ég farið að fara í göngutúra um miðjan dag, haldiði að sé munur. Ekki seint um kvöld þegar það er búið að kólna.
Balthasar er duglegur strákur, það er alltaf að sýnast betur og betur. Hann vill samt láta hafa fyrir sér þessi elska sem er auðvitað bara hans réttur í lífinu. Nína er voða dugleg að taka hann um leið og hann lætur frá sér smá hljóð, honum finnst það nú ekki verra. Óli bróðir spurði hvort við værum nokkuð að dekra hann of mikið (hann orðaði það reyndar öðruvísi, var sagt í gríni, en fannst mér ótrúlega passandi) með því að halda of mikið á honum! Fyndið hvað allir eru góðir að gefa manni ráð hvernig gott sé að haga sér í sambandi við lítil börn. Meira dúllulegt eiginlega, ég kann samt ágætlega að láta þessi ráð inn um eitt og út um hitt ef þið skiljið hvað ég meina. Í nótt vildi drengurinn rokka, amk ekki sofa... vonandi var þetta bara ein nótt sem verður svona. Var ekkert órólegur en samt ekki sofandi, þá er lítið annað að gera en að drekka hugsar hann svo hann var á brjósti mikið í nótt...
Á morgun kemur tengdamamma í heimsókn með manni sínum, þar sem við erum í gestaherberginu í augnarblikinu ætla þau að gista eina nótt á gistiheimili hér nokkrum húsum í burtu. Mjög hentugt, fyrir þau og fyrir okkur. En ég er mjög glöð að þau komi í heimsókn, þá er öll þýska familian búin að sjá prinsinn með eigin augum. Alex kemur næstu nótt frá London, búinn að vera þar við að reisa sýningu síðan á sunnud. það verður gott að fá hann aftur. Á sunnudaginn kom elsti bróðir Alex og fjölskylda því þau voru á leið frá Frankfurt til Hannover og vildi auðvitað taka smá krók á leið sína til að kíkja á nýjasta fjölskyldumeðliminn.
Svo er verið að plana skírn fyrir drenginn, við munum láta skíra í heimabæ Alex sem er stutt frá Frankfurt, á meðan mamma er hjá okkur, það verður athöfn í skóginum, mamma engar áhyggjur af bítudýrum!! Þú ferð bara í kafarabúning!!! vonandi verður bara ekki of heitt....haha.
En við erum búin að nefna hann þannig að þetta verður ekkert leyndó með nafnið í skírninni. Balthasar með h-ái, já því annað er ekki leyfilegt hér úti. Það er bara eins og það er, öllu er hægt að venjast, við íslendingar segjum Baltasar, eins og ekki sé neitt h. Þjóðverjar segja Baaalt´asar ef þið skiljið þetta. Það er sagt aðeins öðruvísi útaf l hljóðinu í íslenskunni líka.
Nína skrapp í dýragarð með nágrönnunum hér, þau eru aðveg yndisleg við hana, þau sem hún var hjá á meðan við vorum upptekin í fæðingunni. Haldiði að það sé ekki grenjandi rigning, gaman í dýragarði í grenjandi rigningu!!! En sem betur fer er hluti af fiskabúrum og skriðdýrum inni.
Bless í bili, ykkar Helga


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home