fimmtudagur, september 28, 2006

Frí, frí...

Það verður nú gaman að komast til Danmerkur. Vorum þar í fyrra er við kíktum til Köben og hittum Mömmu og Þórð en þau voru í viku þar með íbúð á leigu. Nú förum við hinsvegar til Árhúsa í heimsókn til Heiðrúnar og fjölskyldu. Það verður gaman að hitta þau, við hittumst seinast um páskana þegar við vorum á Íslandi. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt...

Ég er mjög spennt, við ætlum að kíkja í legoland og kannski eitthvað meira en við verðum svo í viku í sumarhúsi í Vellerup með mömmu, Þórði, Ömmu Lillu og Þóru systur. Það verður spennandi, við eigum eflaust eftir að kíkja til Roskille og til Köben og gera eitthvað sniðugt saman. Gaman, gaman...

Lífið gengur sinn vanagang eins og er, ég er mikið að gera ekki neitt, þ.e. húsverk og eitthvað dund en kem mér ekki í að lesa það sem ég er með á dagsránni, held ég sé bara aðeins of þreytt fyrir það. Balthasar er svo duglegur að drekka og líka á nóttunni, þarf alveg tvisvar að drekka og heldur manni þannig í léttari svefni en ella. Samt sem áður er ég búin að dreyma töluvert sem ég hef líka munað, aldrei slíku vant, man bara ekki hvenær ég dreymdi seinast og hef getað munað það þegar ég vaknaði. Það er jú sagt að mann dreymi alltaf eitthvað en muni það bara ekki alltaf. Amk var það mjög sérstakur draumur sem mig dreymdi fyrst, ég var að synda í sjó og synti einhverveginn í gegnum fljótandi kirkjugarð (sem var kominn undir sjávarmál) og gat lesið á steinana sem eru á leiðunum. Ótrúlega skrýtið og sá þar líka eitthvað fólk, held samt að ég hafi ekki þekkt neinn en mér leið vel. Komið nú með tilgátu hvað þetta geti þýtt... ég bíð spennt.

Svo dreymdi mig aftur eitthvað með vinnuna hans Alex, ég vaar eitthvað að sniglast í vinnunni hjá honum og það var bara eins og ég væri í verklegum í lífeðlisfræði hjá Prof.jóni með vöðva tilraunina! Þeir sem vita til eiga kannski eftir að fá hláturskast! En amk þá sá ég þar fullt af skópörum og meðal annars nokkur frá Alex og líka eitt frá mér sem ég tók með mér. Svo var mér mál að pissa, ég náði mér í bala og settist á hann á bak við skápahurð (eins og neðriskápar í eldhúsi) HAHAHAHAHA og ákkúrat í því augnarbliki kemur einhver samstarfsmaður Alex, sem ég hef reyndar aldrei séð í alvöru og spyr mig hvað ég sé eiginlega að gera.... og hvað haldiði að ég hafi sagt!!! HVA, HEFUR ÞÚ ALDREI SÉÐ KONU PISSA FYRR, ERTU EKKI SKÁTI EÐA HVAÐ.................HAHAHAHAHA og svo vaknaði ég!!!

Er ég nokkuð tæp?????

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

En gaman!! Við Óli byrjum ófáa morgna á því að kíkja í draumráðningarbókina!
Það er sagt að vatn/sjór í draumi sé fyrir veikindum en fer samt eftir því hvort að vatnið er tært eða gruggugt. Skór eru heillamerki ef ég man rétt svo að ég ætla að giska á að þetta sé fyrir heillvænlegum breytingum :)

3:58 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ha, ha, ha, ég sé þig alveg fyrir mér á balanum!!! ;o)

Ég hafði ömmu Lillu alltaf til þess að ráða drauma með mér heima á Íslandi....hún var helv... góð í því sem og að spá í bolla;o)

Enn hvað draumar eru nú magnað fyrirbæri!

Núna er rétt tæp vika þangað til að ég hitti ykkur...trallalalala....;o)

5:00 e.h.  
Blogger Silja said...

hmmm... þessir eru erfiðir. Ég held að skórnir merki að þú sért að fara í ferð (ég dauðöfunda þig af því) og á leiðinni verði þér ofsa mál að pissa. Þá er málið að stoppa og losa blöðruna, því það er skammgóður vermir að missa piss í skóna. Fyrst þér leið vel í sjónum er allt í góðu, hvað sem kirkjugarðinum líður.

10:38 e.h.  
Blogger Helga said...

Takk fyrir þessar ráðningartilgátur, mér líst vel á þetta hjá ykkur. ÞEtta með ferðina er nú gefið en ég hugsa að það sé verið að tala um stóru ferðina (flutninginn) :-þþþþ

En haldið áfram að þýða draumana...

eg held áfram að dreyma á meðan ZZZZZZZZZ............

11:16 e.h.  
Blogger Sigga said...

Humm ég held þetta sé leynd aðdáun á prófessor Jóni. Þú manst þetta með göngin sem opnast og hvaða jón kemur þar inn og allt það!
Minnir líka að það hafi eitthvað verið pissað í þessum tímum er það ekkiÐ?
kv Sigga...aðeins búin að smakka það!

5:00 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Ég man nú þegar þú sagðir við prestinn í Svíþjóð (eftir að hann kveikti eldinn fyrir okkur, eftir nokkuð margar misheppnaðar tilraunir hjá okkur): Ég er nú skáti líka!!!

Það styttist óðum í að við hittumst, hér í Danmörku, mikið hlökkum við Þórður til:)

Bestu kveðjur úr Köben.

1:44 e.h.  
Blogger Bippi said...

Eitt sinn skáti ávallt skáti;)

4:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta eru vissulega skemmtilegar tilgátur. Ég verð nú að viðurkenna Sigga að ég hafði mjög gaman af þessum tímum, líka þegar það átti að pissa, reyndar ekki í bala heldur í mælikönnu en það var viss skátatilfinning fyrir því...

Skátar pissa nú frekar bara í guðsgrænni en það er nú annað mál.

Skátamerkið!!!

ykkar Helga ofurskáti

11:50 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters