Snjór, snjór og aftur snjór. Já svaka gaman, vorum að gera tvo snjókarla í garðinum og hjá nágrannanum í garðinum reyndu krakkarnir að gera snjóhús... þar var boðið upp á snjósúpu og flott. Ætluðum að reyna að fara að renna okkur á okkar plast snjóþotu en það var ekki neitt gaman þar sem það var svo margt fólk, krakkar og fólk að renna sér á sínum trésnjóþotum. Það gerði ekki neitt til þar sem nógu gaman var hér heima í garðinum.
Á morgun eigum við von á gestum og erum svaka spennt að sjá þau Björg, Hjalta og Pjetur Már litla. Vonandi gengur allt vel á leiðinni frá Hollandi hingað til okkar.
Svo er á morgun síðasti vinnudagurinn í bili, búin að vinna tólf daga í röð en þannig er skipulagið í vinnunni og fæ rétt svo helgina í frí. En þá er maður víst tilbúinn í slaginn aftur,,,,, veit ekki hvort ég tek undir það.
Mig langar að benda á ansi skemmtilega umræðu um jafnrétti og ferðrahlut í fjölskyldu og uppeldi barna á síðu Óla bróður undir heitinu Rokkarinn fyrir þá sem hafa áhuga, ansi skemmtileg lesning.
jæja ætla að fara að borða, er að deyja úr hungri eftir að hafa verið úti í snjónum....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
fimmtudagur, janúar 29, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home