miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Faðir vor

Ég var að velta því fyrir mér um daginn að það er sérstakt með okkur Íslendinga og trú okkar, sem margt annað sem tengist okkur. Við erum flest trúuð og viðurkennum trú okkar á Guð eða eitthvað! Við notum þessa trú hinsvegar mjög lítið í daglegu lífi og beinum hugsunum okkar iðjulega til trúnnar þegar eitthvað bjátar á eða við erum hrædd við eitthvað! Sérstakt að maður hugsi ekki sérstaklega til trúnnar þegar eitthvað skemmtilegt er eða þegar eitthvað gengur vel.

Við erum búin að ala Nínu þannig upp að það sé gott að fara með faðirvorið. Ekki neitt sérstaklega þegar hún er hrædd eða eitthvað bjátar á. Heldur bara almennt en samt sem áður eru margir dagar þar sem hún hugsar ekki neitt út í trúnna eða út í það að fara með faðirvorið en aðra daga getur hún ekki farið að sofa fyrr en hún er búin að fara með faðirvorið.

Þetta líkist frekar heiðinni trú heldur en mótmælendatrú eðs lútherstrú sem við Íslendingar fylgjum. Við erum örugglega bara heiðin eftir allt. Teljum okkur vera guðstrúarfólk og erum svo bara öll saman ásatrúar!

En að öðru máli. Mamma og Atli, ég kem að sækja ykkur á flugvöllinn til Amsterdam. Það verður enginn vinnufundur því svo margir samstarfsmenn eru veikir þannig að þá er ég laus. Sí jú á flugvellinum. Omg bara að fara að leggja í hann eftir nokkra klukkutíma. Gaman gaman.

Já og ég á von á Alex heim eftir rúman klukkutíma.
Nína er orðin hressari, ennþá samt hósti í henni og hor sem lekur viðstöðulaust. Hún er hitalaus, sé til hvort ég sendi hana í skólann á morgun.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters