Amsterdam
Við mægður skruppum í stutta helgarreisu til að hitta okkar heittelskaða Alex! Já það er ýmislegt lagt á sig til að hittast. Aksturstími er rúmir tveir klukkutímar og það var svo æðislegt veður um helgina, blankalogn, sólskin, ekki ský á himni og svona 5-8 stiga hiti. Ekki neitt skemmtilegra að stíga upp í bíl og aka til Hollands þar sem allir eru svo ligeglad og líbó.
Við löggðum af stað um 16 á laug og vorum komin til Amsterdam að sækja Alex rúmlega sex, fórum svo með hans 25 aðstoðarmönnum út að borða á steikhús í miðri Amsterdam en það er ótrúlega skemmtileg stemming í borginni. Við Nína fórum svo strax eftir matinn á hótelið okkar, Hotel Asterisk þar sem ég fékk mér rauðvín og Nína fékk sér nammi.... Alex kom svo síðar um kvöldið og við áttum góða stund saman. Alex þurfti svo að fara snemma um morguninn að vinna, Ég og Nína nutum þess að sofa út og fá okkur morgunmatinn í ró og næði.
Svo var leið haldið niður í miðbæ. Við fórum gangandi og sólin skartaði sínu besta. Við byrjuðum á að fara í klukkustunda rúnt á fljótabát sem var mjög áhugavert og gaman, svona sightseeing. Eftir þetta héldum við áfram göngu og fórum yfir Dom platz sem var skreytt skautasvelli, alls kyns litlum markaðsbásum og túlípanasölufólki. Héldum sem leið lá í safnið Anne Frank.... mjög átakanlegt að sjá og stíga fæti í húsnæðið þar sem Anne Frank átti heima, í 15 mánuði bjó hún þar með fjölskyldu sinni og vinafólki þar til upp kom um felustaðinn og þau voru öll flutt í Auschwitz þar sem Anne dó, einungis 15 ára gömul. En faðir hennar var eini úr fjölskyldunni sem lifði af. Ótrúlega sorglegt. Það var svo margt fólk á leið í safnið að við þurftum að bíða í röð fyrir utan húsið í langann tíma (amk fannst mér það vera langur tími).
Eftir það fengum við okkur snarl og fórum svo aftur á Hótelið þar sem við náðum í bílinn og keyrðum til Alex og áttum svo skemmtilegan eftirmiðdag með honum.
´
Á morgun er svo fimmti vinnudagur minn og frí hjá Nínu í skólanum.
Já og heimsóknin kom ekki! Ekki orð um það meir....
Ég bið ykkur vel að lifa dúllurnar mínar og eigið þið góða vikubyrjun!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home