þriðjudagur, febrúar 08, 2005

dagsins amstur

hæ, já það er farið loftið úr mér núna.

Var að vinna í morgun, ég á alveg eftir að venjast því að vera vinnandi aftur. Maður þarf að venjast því að hafa ekki allan morguninn til að komast í gang eins og ég hef haft síðan í mars í fyrra, ótrúlegt hvað maður er orðin mikil húsmóðir að aðalatvinnu.

En það er gaman að hafa eitthvað fyrir stafni!

Ég ætlaði að minnast á eitt. Í gær var myndin 101 Reykjavík í sjónvarpinu hér á stöð sem heitir ARTE. Alveg mjög uppbyggileg og lýsandi mynd fyrir íslenskt samfélag. HAHAHA Góður þessi. Svo stóð í lýsingunni, komödie, já það var einmitt það, að mínu mati er þetta frekar ádeila á íslenska samfélagið. Ég tók það nú fram við fólk sem var að ræða þetta við mig að þetta væri meira svona írónía þessi mynd.... OG að horfa á blessaða myndina með þýsku tali, er eins og meðferð fyrir föðurlandsdýrkendur!

Ekki skilja þetta vitlaust, ég er hrifin af sögunni og finnst þetta ekki léleg mynd en hún er samt ekki eitthvað sem ég mundi nota til að kynna landið mitt, sorrý kannski er ég föðurlandssvikari?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters