miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Frí

Eitt er mjög skrýtið. Nú er ég búin að vera heimavinnandi og bara búin að haga mínum málum eins og ég vil. Kannski soldið látið hafa áhrif á mig hvað nágrannarnir gera og svona. Til dæmis, fara út og kjafta við mæðurnar þegar börnin hittast til að ganga saman í skólann og taka upp Rolladen snemma morguns, ekki um hádegi eða svoleiðis. Rolladen eru svona utaná gardínurúllur sem maður setur niður til að sjáist ekki inn til manns þegar dimmt er úti og maður er með kveikt ljós, eitthvað alþýskt fyrirbæri.

Jæja en það sem ég ætlaði að minnast á er að ég get ekki annað en hugsað um frí síðan ég byrjaði að vinna. Ég meina það er ekki ÞAÐ slæmt í vinnunni en samt skrýtið. Ég er búin að biðja um frí í apríl, eina viku, og svo er ég alltaf að reyna að plana allar helgarnar svo að ég upplifi eitthvað annað en vinnuna. Gaman að þessu... Svo er ég komin í saumaklúbb, íslenskra kvenna vestan atlantshafsins! Og það á að hittast næst 6.mars, og gat nú verið, ákkúrat er ég að vinna þá helgi!

Gleðitíðindi!!!! Mamma og Atli ætla að koma í helgarheimsókn til okkar næstu helgi, fljúga á Amsterdam 24.2. og heim aftur 27.2. Frábært að ég sé í fríi. Þá gerum við eitthvað skemmtilegt, förum til Munster og niður í bæ og eitthvað svona. Gaman gaman... Þannig að þeir sem vilja koma gjöfum til mín, vinsamlegast beinið ykkur að þeim fyrir brottför! Nei smá grín hérna en annars væri einn hríspoki vel þeginn...

Alex er nýbúinn að kaupa sér tölvuforrit til að gera skattaskýrsluna, guð hvað ég vona að við fáum slatta til baka frá Skattinum.

Já og ég ætla að fara með Nínu til Halle sem er rétt hjá Leipzig yfir páskana og vera þar með Pirjo og Martin vinum mínum. Fullt að gera hjá mér, omg, en ég hlakka mikið til að gera allt svona, þetta lífgar upp á hversdagsleikann.

Svo að lokum minni ég á nýju myndirnar hjá Alex á síðunni og á blogg míns árgangs

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters