mánudagur, febrúar 14, 2005

Mikið að gera um helgina

Já það er nóg að gera á litlu heimili.

Við drifum okkur á föstudeginum eftir skóla hjá mér til Detmold, í gamla heimabæinn okkar og áttum þar ánægjulegan tíma hjá Pirjo vinkonu minni.

Nína fór í barnaafmæli til Rominu bestu vinkonu sinnar úr gamla skólanum. Henni fannst það rosalega gaman.
Við heimsóttum nokkra gamla nágranna, yndislegt fólk og Alex hitti gamla skólafélaga.

Já það má segja að mottóið hafi verið gamalt og gott!

Svo fórum við til Lúlla og Gretu og knúsuðum litlu Heiðdísi Eddu sem er algjör rúsína og vær og góð, það er spurning hver þeirra þriggja heimiliskarlmanna sé faðir barnsins, hálf fyndið, það vildu allir vera með hana, næstum allan tímann..... En svona er þetta gaman að eignast systkini og barn að maður vill bara varla sleppa höndum af því.

Já og Nína krútt fékk einkunnir á föstudaginn, alveg hetja þessi drottning! Ath ekki lengur lítil! Hún fékk einn einn, í þýsku, sex tvo í einkunn og þrjá þrjá, í leikfimi, trúarbragðafræði og músík. FRÁBÆRT NÍNA, TIL HAMINGJU!!! Hún er auðvitað ánægð með sig en er mjög jarðbundin og er ekki neitt að monta sig, sem ég mundi örugglega gera, HAHAHAHA. Ég var einmitt að segja við Alex að það er eins gott að maður fari ekki að bera saman hvernig við foreldrarnir vorum í skóla, við hennar einkunnir!!! Ekki orð um það meir!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters