mánudagur, febrúar 21, 2005

Nína veik

Hæ kæru lesendur. Já ótrúlega leiðinlegt, ákkúrat þegar það er kominn snjór hjá okkur, nóg til að liggja hálfan dag á grasinu þá er Nína veik. Þetta grei. Í gærkvöldi var ég á kvöldvakt, btv búin að vera að vinna eins og vitfirðingur um helgina (skil ekki alveg tilganginn með þessu) og ´Nína ein heima því pabbi var jú að fara til Amsterdam að rífa niður sýningarpallana! Amk þá var Nína svo drusluleg og lítil hér ein að volast heima og þegar ég kom heim þá mældi ég barnið mitt og viti menn, 38,5 gráðu hita. Alveg að drepast úr höfuðverk og með hor í nös. Ég gaf henni te að drekka og lét hana taka eina paracetamol 500mg. Svo í morgun var hún enn með hita þannig að hún var aftur ein heima og slapp við skólann.

Hún var voða dugleg í morgun, svaf reyndar alveg eins og skata en var hálf léleg þegar ég kom heim með dúndrandi höfuðverk þrátt fyrir að hafa sofið allan morguninn. Þannig að nú er það bara kók og nammi!!! já og tímarit að lesa. Hún er reyndar að gera heimalærdóminn núna, vinkonan á móti kom með það til hennar. Alltaf að læra.

Já og svo ætlaði ég að koma því á framfæri að gestum og gangandi er velkomið að koma í heimsókn til okkar. Það er hægt að skoða kort af Þýskalandi og öðrum löndum á www.map24.de og við eigum heima í 48653 Coesfeld. Nóg pláss í húsinu okkar, bara að kooma....

Svo langaði mig að biðja alla að leggja höfuðið í bleyti og láta mig endilega vita ef þið hafið verið í Svíþjóð í sumarhúsi. Við stefnum þangað í ágúst og nennum ekki að keyra langt inn í Svíþjóð en langar að vera í sumarhúsi. Ég er á fullu að skoða þetta á netinu en finn ekki það rétta!!! Annað hvort of dýrt eða já aðallega það, of dýrt. Ég er bara ekki alveg til í að borga hátt í þúsund Evrur á viku.... ég er kannski bara of nísk?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters