laugardagur, júlí 09, 2005

5 ára brúðkaupsdagur

Hæ hæ aftur,

long time no sí

Amma lilla er farin, hún tók Nínu með sér. Það var nú gaman að hafa hana í heimsókn. Ég var samt farin að sakna miðdegislúrs míns, sem ég tel færa mér hamingju og heilbrigði. Við fórum þess í stað í búðir og á kaffihús sem var mjög gott líka fyrir heilbrigði mitt, þótt vigtin kannski fullyrði annað....

Í gær komu svo Anna Sigga og Ragnar Stefán í heimsókn með hana Heklu litlu. Já tvær Heklur í kring um mig, algjör tilviljun en æðislega fallegt nafn.

Í dag fór ég í skólann og þau fóru í verslunarleiðangur til Munster sem reyndist frekar gæfuríkur.

Í dag er brúðkaupsdagur okkar Alex, takk fyrir Freyðivínið mamma, og blómvöndinn amma!! Alex kom með yndislegar fimm rauðar rósir. Ég gaf honum vindil fyrir að halda það útí fimm ára hjónabandi með mér. Ég er svo þakklát að hafa hann og í kvöld notuðum við tækifærið og skoðuðum dvd frá því í brúðkaupinu, ljósmyndir frá ljósmyndaranum og svo albúmið þar sem myndirnar voru í sem Manfred, Eveline og það sem var á borðinu voru teknar úr. Ljúft að skoða þessar myndir.....

Nína er farin, já ég veit er ég búin að segja það,,,, en þetta er skrýtið....

4 Comments:

Blogger Helga said...

Takk fyrir það Heiðrún mín.

11:49 f.h.  
Blogger Sigga said...

Til hamingju með daginn Helga og Alex....ég trúi því ekki að það séu komin 5 ár. Ég get svarið það!
Við vorum einmitt að koma úr brúðkapi á Loftleiðum...fyndin tilviljun.

4:54 f.h.  
Blogger Helga said...

Mér finnst líka ótrúlegt að það séu komin fimm ár! Já skemmtileg tilviljun, á fimm ára fresti á sama degi brúðkaup á sama stað!.

9:39 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með árin 5..

--%-@

xxx Þóra sys

5:20 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters