mánudagur, júlí 04, 2005

Jibbý

Ég er búin að laga þetta. Frábært. Finnst ykkur það ekki líka.

Heyrðu þá er að koma almennilega með umfjöllun frá þríþrautarmótinu. Það var í 27 stiga hita og sól. Það var haldið í nágranna bæ við okkur og Alex tók þátt. Hann var að taka þátt í fyrsta sinn. 500 metra sund, 21,8 km hjól og 5,2 km hlaup. Hann var rosa spenntur. Það var frábær stemming þegar þeir voru að byrja, alveg 19 manns á sama tíma að synda í sundlauginni og að keppast við að ná góðum tíma. Fara svo uppúr í hjólaskóna og á hjólið. Setja á sig hjálminn og leggja svo af stað. Þegar þeir voru svo búnir að hjóla var aftur skipt um skó, farið í hlaupaskóna og það var rosalega erfitt að byrja að hlaupa. Alex sagði að það hefði verið svo erfitt að byrja að hlaupa að hann hefði verið að hugsa um að hætta. En hann hélt áfram og gekk svona líka rosalega vel. Hann var tíu mínútum á eftir þeim fyrsta í mark. Við amma og Nína vorum duglegar að hvetja hann áfram, amma á íslensku "áfram Alex" og við á þýsku. Þetta var mjög skemmtileg upplifun. Ég set inn mynd þegar ég fæ þær úr framköllun. Já haldiði að sé, það er bilað displey á digital myndavélinni okkar (hans)..... ömurlegt, ekki hægt að taka neina mynd á meðan.

Ömmu fannst gaman að skoða þegar Alex var að keppa, við komum heim og tókum okkur til. Fórum svo út að borða, amma bauð. Svaka fínt, bara heldur heitt......

Svo þarf ég að fara að huga að því hvað Nína ætlar að taka með sér. Það fera ð koma að því að hún fljúgi til Íslands. Á miðvikudag er síðasti skóladagur og svo flýgur hún með ömmu á föstudag. Á fimmtudag koma Anna Sigga og Ragnar Stefán í heimsókn. Ég hlakka til að sjá þau með hana Heklu litlu.

Ég er að fara á vinnufund í kvöld, það verður gaman, aftur út að borða og fínerí. Amma og Alex horfa bara á Sky news á meðan......

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með árangurinn Alex, fott hjá þér :)

Það er aldeilis nóg að gera hjá ykkur sem er bara fínt!!
Þetta er önnur tilraun til að commenta hér, hin mistókst.

Kveðja mamma (passwordið mitt gekk ekki?)

11:44 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Kul shit... eg reyndi eitthvad ad kikja a thetta en hafdi bara ekki tima adur en eg for ut... mikid ad gera heima og svo thurfti madur natturulega ad koma i sig bjor i morgunmat :p

2:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters