Jesús hvað það er mikið að gera hjá okkur
Og hvað er að gerast með bloggið? Getur enginn ráðlagt mér eitthvað. Plís, plís tell mí náv.
Afi minn Óli Örn Ólafson hefði orðið áttatíu ára á föstud. Amma minntist líttillega á það á fimmtud. Ég sagði henni að mamma hefði farið með blóm og einhver hafði verið búinn að setja eina rós á leiðið. Henni fannst mjög vænt um það.
Við fórum til munster á föstud. Það voru að byrja kirkjudagar þá! Svaka stuð, mikið af ungu og öldnu fólki og mikið um tónlistarpalla þar sem hljómaði hávaði í eyrum okkar... Í eyrum ömmu allt of hátt! Við hlupum áfram til að komast frá hávaðanum, hún náði að versla sér fallegt sett, buxur og vesti. Eins gott að hún noti það! Við lentum í rigningu en enduðum á kaffihúsi þar sem við létum stjana við okkur. Ég mætti aðeins of seint í skólann því ég drakk kaffi og borðaði köku með ömmu, Alex og Nínu. Það var gaman. Þau fóru svo aftur í bílinn og voru komin heim um kl.18. Ég fór eftir skóla með lestinni heim sem var fínt, smá afslöppun :-Þ
Í dag eftir vinnu fór ég með ömmu til Winterswijk, sem er mjög skemmtilegur bær í hollandi, svona rúma þrjátíu kílómetra frá okkur. Við fengum okkur góðan göngutúr í bænum sem er mjög skemmtilegur og það vildi svo heppilega til að það var markaður (alltaf á laugard.) og við höfðum gaman af að skoða þar allt á milli himins og jarðar. Fengum okkur góðan mat og kaffi og héldum svo aftur heim á leið eftir mjög vel lukkaða heimsókn til Hollands.
Hálftíma pása heima þar sem ég sofnaði á legustólnum mínum úti í garði í 23 stiga hita og skýjuðum himni. Yndislegt, æ lov it. Ég bara verð að segja það að þetta er með því notalegasta sem ég geri, hvíla mig úti í garði. Amma sagði að ég hefði sofnað. Yndislegt.
Svo var ferðinni haldið áfram, við fórum á lokahóf í bekknum hennar Nínu, það var haldið hjá frændfólki eins drengs í bekknum, á sveitabæ. Börnin tjölduðu og ætla að sofa í tjöldum eða vaka! Það voru ræður og viðurkenningar afhentar. KEnnarinn var mjög hugguleg og yndisleg við ömmu. Hún er alveg sérstök hún Fr.Bömelburg. Já nóg með það. Við fórum þangað um 17, krakkarnir og nokkrir foreldrar löggðu af stað kl.15 á hjólum (ca.15 km) og voru svo að týnast inn á sveitabæinn til kl.18. Það var svo grillað, sumir komu með salöt og það var borðið upp á pylsur. Ömmu fannst gaman að vera þarna en þetta var ansi strembinn dagur þótt hún dúllan vilji aldrei viðurkenna að hún sé þreytt.
Nú erum við að fara að sofa og ég segi bara góða nótt.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home