fimmtudagur, júlí 14, 2005

Vinnan, gestir, Nína farin og bílinn aftur í viðgerð

Ég er búin að vera á kvöldvakt þessa vikuna. Það er svooo slítandi að vera að vinna frá 16-20:15 það væri betra fyrir þessa rúmu fjóra tíma að vera á morgunvakt eða á algjörri kvöldvakt frá átta eða eitthvað slíkt. Vinnan er ekki að ergja mig mikið þessa vikuna samt sem áður. Það er svona að vera með gesti sem segja við mann áður en ég fer, og ekki láta vinnuna fara í taugarnar á þér! Svo þegar ég kem heim úr vinnunni bíður eldaður matur eftir mér og að borða mat í góðra vina hópi er auðvitað yndislegt. Við erum líka búin að vera dugleg að skoða hitt og þetta, fara í smá bíltúra og fá okkur stóra ísa hjá ítalska ísmanninum niðrí í bæ.

Anna Sigga og Ragnar Stefán með Heklu eru núna í þessum skrifuðu orðum að gera sig klár því í dag eru þau að fara þangað sem Anna Sigga var skiptinemi. Þar er brúðkaup um helgina og þess vegna eru þau að fara þangað í heimsókn. Það er búið að vera yndislegt veður, hátt í þrjátíu stig síðan á laugard. eiginlega of mikið fyrir litlu dúlluna og brjóstagjafa mömmuna. Við vorum að spila 6 nimmt í gær, ég vann! Alltaf gaman þegar ég vinn, híhí

Nína krúsí er í góðu yfirlæti hjá ömmu Siggu á Akranesi. Hún fékk kjötbollur í gær, svo sagði hún mér hvað verður í dag en ég man það ekki. Um helgina voru írskir dagar á Akranesi, svaka gaman þar, að leika og hafa gaman. Þóra fór með Hlyn og Nínu í það prógramm. Mamma kom svo að Neskaupsstað á sunnudagskvöld. Hún fór svo með krakkana í pottinn á mánudeginum þrátt fyrir skurðsárið á lærinu. En það mætti verða aðeins skemmtilegra veðrið. Rigning og kalt, æi nei ekki í sumarfríinu.

Bíllinn fór með Alex í viðgerð í dag. Það verður gaman að sjá hvað kemur útúr því, maður er nú búinn að eyða fúlgu fjár í bílinn og ætlar engan endi að taka. Svo er bara að fara að skoða eftir nýjum bíl.

Ég er búin að fara tvisvar sinnum í ræktina en það er örugglega ekki búið að gera neitt í mínum líkama. Ég borða svo góðan mat og svo eru jarðaber og ís, kökur og nammi í eftirrétt.....koma tímar koma ráð.

Ég bið ykkur vel að lifa og óska ykkur góðrar helgar.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það var læri, læri tækifæri í matinn í gærkvöldi :)

En guð hvað ég vona að það verði allt í lagi með Alex?? Þurfti að gera mikið við hann?

12:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æi ég gleymi alltaf að kvitta.. þetta var sem sagt ég.. Þóra systir þín!

12:25 e.h.  
Blogger Helga said...

Nei ég meinti að Bíllinn fór með Alex í vinnuna og svo með bílinn í viðgerð, hahaha....

kostar 400 að gera við...

10:07 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters