Siminn og gestir
Síminn er kominn í lag. Ég tók þrjú tæki af fimm sem eru fyrir símasnúru og tdsl tenginguna og fór með það í verslun símans í bænum. Eitt tæki gaf starfsmaðurinn mér strax með og sendi mig heim að setja allt saman. Ég auðvitað alveg sjiiii.... Alex var búinn að taka þetta í sundur fyrir mig og nú þurfti ég á mettíma að læra allt það sem tilþarf til að tengja rétta snúru við rétt tæki. En það tókst og þetta tæki sem var líka ónýtt fyrir 8 mán. var semsagt núna ónýtt, aftur fengum við nýtt tæki í staðinn. Ég geri ráð fyrir að straumurinn sem kemur inn í húsið sé ekki svo nákvæmur, þ.e. eins og hann á að vera og kannski eitthvað of mikið fyrir þetta blessaða tæki. Ég veit þá hvaða tæki ég bið um næst þegar síminn bilar.
Það kom mér skemmtilega á óvart hve margir tjáðu sig varðandi byggingu húss og flutnings heim.... Það er svoleiðis hjá Akranesbæ eins og örugglega mörgum öðrum bæjum þar sem er byggt. Eftir afhendingu lóðar má gefa sér tíma í eitt ár að byrja að byggja og þá má maður vera í eitt ár að byggja. Ef maður ætlar sjálfur að sjá um mestan hluta vinnunnar þá má gera ráð fyrir hátt í ár að byggja eftir vinnu og um helgar. Ég veit ekki hvað tæknifræðingurinn ætlar að gera í sambandi við þetta. Gróft áætlað má segja að við flytjum heim á næstu árum.... ef við fáum lóð. Svo er spurning hvað er næstu ár, ja kannski innan tveggja ára!
Um að gera að kaupa sér flug og tryggja að maður fái gestarúmið! Ég veit reyndar ekki hvernig það er með Express, fljúga þeir áfram á Frankfurt Hahn? Annars er flugvöllur í Niederrhein þar sem flug frá Ryanair frá London Stansted. Eða bara Amsterdam eða Frankfurt og taka lest eða bílaleigubíl..... Koma svooooo.
Ég er svo lukkuleg með það að ég byrja ekki að vinna fyrr en hálf níu, nú skil ég hvað þú áttir við Heiðrún,,,,, á morgnana núna. Ein konan sem ég hef annars verið með er á sjúkrahúsi og kemur væntanlega á föstud. í næstu viku. Ég hef næstum klukkutíma sem ég er ein heima á morgnana eftir að Alex og Nína eru farin í skóla og vinnu. Þetta er yndislegt, lesa blaðið í friði, drekka kaffi og ganga frá í eldhúsinu, kíkja í tölvuna og svo framvegis, ótrúlegt hvað passar í einn klukkutíma.


5 Comments:
Bíddu, hvenær fara Nína og Alex eiginlega af stað á morgnana?
Nína fer 7:25, hún þarf að hjóla ansi langa leið og þær hittast nokkrar til að hjóla saman. Alex fer um 7.
Það stóð hálf átta fyrst er það ekki....eða er ég orðin rugluð;)
jú einmitt, ég breytti því, híhí
Segðu svo að ég lesi ekki pistlana þina vel;)
Skrifa ummæli
<< Home