miðvikudagur, október 19, 2005

Frú Merkel kanslari Þýskalands

Kona við völdin í Þýskalandi. Þetta er svolítið sérstakt hér þar sem hlutverk kvenna er áberandi meira í skugga heldur en hlutverk manna. Þar á ég við á hefðbundnum heimilum og útávið. Auðvitað má deila um það hvað er hefðbundið og svo framvegis. Nágrannakonur mínar tala allar eins og menn þeirra ákveði um flest. Þeir gefa þeim leyfi til að fara út á vinnumarkaðinn, þeir ákveða um fleira en (leyfi ég mér að fullyrða) karlmenn á íslenskum heimilum þar sem jafnræði ríkir alla jafna. Íslendingar voru svo heppnir að hafa Vigdísi Finnbogadóttur forseta, kona í þessari stöðu þetta var alfrægt og er enn. Nú verður kanslari Þýskalands kona og ekki af verri endanum. Hún mætir ansi kröftugri gagnrýni. Hún er alltaf í buxnadragt og það er gert grín af því, hún er með frekar þunnt hár og það er gert grín af hárgreiðslu hennar, hún er oft með skeifu, nema þegar hún brosir og það er gert grín af því. Mikið mál er gert úr því að hún eigi engin börn, hún er með háskólapróf í eðlisfræði og er búin að vinna sig upp í stjórnmálum. Vissulega verða stjórnmálamenn fyrir gagnrýni en að mörgu leiti er verið að gera grín af kvennleika hennar. Hver gerir til dæmis grín af klæðnaði eða hárgreiðslu karl stjórnmálamanns? Þetta eru merk tímamót í sögu þýskra stjórnmála er sagt í blöðum. Vissulega er það það en líka neyðarlegt fyrir konur sem hafa svo lengi verið að berjast fyrir jafnrétti eins og raun ber vitni að það skuli kalla á það mikla athygli að kona komist til valda í Þýskalandi. Kona sem er ekki með stjórnmálamenntun en flestir stjórnmálamenn í Þýskalandi eru annað hvort stjórnmálamenntaðir eða lögfræðingar.

Vildi bara koma stuðningi mínum á framfæri við Frú Merkel, hún á eftir að eiga nógu erfitt í starfi. Bara svo hún þurfi ekki að hafa áhyggjur af því hvort ég styðji hana eða ekki!!!

Í gær fór ég til Ingu Bjarkar til Recklinghausen í heimsókn. Við löbbuðum um miðbæinn og versluðum smotterí. Það var mjög gaman að hitta hana, við verðum að vera duglegar að hittast Inga! Um helgina er svo saumaklúbbur og á laugardaginn þá ætlar Nína að vera með markað. Bankinn hennar býður upp á markað og allir krakkar sem eiga bankabók fá stæði til að selja gamalt dót, föt, spil, bækur eða hvað sem er. Það verður gaman fyrir hana. Hún hefur gert þetta einu sinni áður, þá í skólanum sínum og var hún mjög lukkuleg þá.

Í dag á Eveline tengdamóðir mín afmæli. Til hamingju með það mín kæra. Ég hringdi í hana í morgun og þá var strax komin heimsókn til að skála í freyðivín. Alltaf gert svo mikið úr afmæli hér, en mér finnst það æði. Skál fyrir því, eigið góðan dag, ykkar Helga

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá hvað ég myndi ekki meika að vera týpísk þýsk húsmóðir....ég yrði mjög fljótlega flutt á hæli vegna þunglyndis....:/

1:14 e.h.  
Blogger Helga said...

Já skrýtið þetta með þýskar konur, ekki nema von að sumar hverjar séu svolítið sérstakar. Svo er alltaf huglægt mat, hvað er týpískt í mínum huga! Tengdamamma mín sagði mér eitt sinn að stolt hennar hefði verið mjög sært þegar hún þurfti að fara að vinna eftir skilnað þeirra hjóna! Særð útaf því að hún fór á vinnumarkaðinn og gat ekki lengur verið heima. Ég þyrfti að vera í alls kyns klúbbum og veseni ef ég væri allt lífið heimavinnandi.

1:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, þetta er náttúrulega spurning um normið hverju sinní á hverjum stað......kannski myndi maður meika þetta ef maður þekkti ekkert annað.

Þýskum konum finnst örugglega íslenskar konur vera ruglaðar og gætu ekki hugsað sér að vera útivinnandi með börn.

En persónulega finnst mér þetta mjög gamaldags, auðvitað eiga báðir aðilar að taka þátt í heimilshaldi og barnauppeldi. Er það ekki annars??

1:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já einmitt Inga, mikilvægur þáttur í útivinnu kvenna hér er að ekki er gert ráð fyrir dagvistun fyrir börn yngri en 3 ára. Það er rosalega erfitt að fá dagmömmupláss svo ekki sé talað um dýrt, margar konur þyrftu eflaust að borga með sér, þ.e. borga meira fyrir pössun heldur en þær fá í laun.
kv. Helga

8:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er sammála Ingu í þessu máli hér. Mér finnst að þó að margar þýskar konur vinni heima þurfi það ekki endilega að þýða að þær séu samfélagslega kúgaðar af eiginmönnum sínum!

Og þó að konan sé heimavinnandi getur verið mjög gott jafnréttissinnað andrúmsloft heima við! Ég er mjög ósammála þér Heiðrún hvað þetta varðar þú segir að þér finnist að báðir aðilar eigi að taka þátt í heimilshaldi og barnauppeldi en mér finnst að þó að konan sé heimavinnandi þá þýðir það ekkert endilega að báðir aðilar taki ekki þátt í þessu!

Sérð það að margar konur kjósa það að vera heima við, ég segi ekki að ég sé endilega sammála því að senda ekki krakkana í leikskóla eða til dagmömmu af því að ég tel það vera þroskandi fyrir krakkana. En hins vegar getur komið upp sú staða að fjárhagslega hefur maður kannski ekki möguleika á því. Sjáðu leikskólagjöld á Íslandi í dag!! Það er bara 'varla' að maður hafi efni á því...

En ég spyr bara: Hvað er týpísk þýsk húsmóðir fyrir þér?? Er það kona sem er lokuð inni og á sér ekkert félagslíf, þrífur kannski allan daginn.. alla daga hugsar um öll fjármál og svo framvegis??? Fyrir mér er týpísk þýsk húsmóðir ekki svoleiðis.. en það kannski sýnir fáfræði mína!
B.kv. Þóra

10:53 e.h.  
Blogger Helga said...

Týpísk þýsk húsmóðir er sú kona sem "fer eftir því sem maður hennar segir" semsagt fer ekki út að vinna því maður hennar kýs það. Nb í mínum litla kaþólska bæ! Hér eru flestir stjórnmálalega sinnaðir eins og sjálfstæðisflokkurinn á íslandi, hér eru mjög margir verkamennamenntaðir eða í með "litla" menntun, eiga tvö börn, einn bíl (sem maðurinn fer á í vinnuna) og með meðaltekjur. Semsagt alveg pottþétt fyrir konur að vera heima. MArgir eiga húsvagn og fara ekki öðruvísi í frí en svoleiðis. Já bara til að gefa smá mynd af þessu.

Vissulega eru líka til kúgaðar eiginkonur á Íslandi, ég dreg það ekki í efa en mundu þær hegða sér eins og þýskar? Ég veit það ekki. Samfélagið er einfaldlega öðruvísi og kannski getur maður helst metið þetta þegar maður býr í öðru landi. Það væri gaman að fá álit Önnu B. sem er nú búsett á Íslandi og hefur átt heima ansi lengi í Þýskalandi. Kannski þekkir hún ekki þýskar húsmæður, því þær fara ekki í háskólanám sem dæmi.

Lokaorðin eru sú að þetta er ekki auðveld staða fyrir marga að kona sé að komast til valda í Þýskalandi!

Gott innlegg Þóra.

8:24 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters