Nína í skólaferðalagi
Hún fór í gær. Ég er nú samt með smá hnút í maganum fyrir hennar hönd. Já að vera ein með sextíu krökkum, þremur kennurum og 5 unglingsstúlkum í skólaferðalagi langt í burtu. Þau verða reyndar bara í tvær nætur, hún kemur á morgun en samt. Hún á eftir að skemmta sér kongunglega og rétt áðan hringdi hún til að láta vita að allt væri í lagi, við vorum reyndar of sein að svara þannig að hún gat bara talað á símsvarann. *arg*


5 Comments:
Ég fer að verða vön manneskja í þessum málum, drengurinn alltaf í alls kyns ferðalögum. En alltaf heldur maður að maður sé eitthvað ómissandi en svo skemmta þau sér bara konunglega án manns;)
Það er að sjálfsögðu frábært að þau skemmti sér vel án okkar. Hvernig verður þetta þegar þau flytja að heiman??? Þegar við erum með svona tilfinningar þegar þau fara í stutt ferðalög?
Ég hef nú nokkrum sinnum leitt hugan að því en vil helst ekki hugsa um það nærri því strax.
Ætli Snorri verði ekki fertugur heima hjá mömmu;)
Hún spjarar sig fínt stelpan,,dóttir móður sinnar ekki satt!! Sæmi ætlar alltaf að búa hjá móðir sinni,,, ef konan hans vill ekki búa þar líka,, getur hún bara búið annarsstaðar. kv Gunna
Já og Gunna mín, hann Sæmi er sonur mömmu sinnar.... Góður þetta með konuna sem býr þá bara annars staðar. Hann er algjör mömmu prins. Kveðja Helga
Skrifa ummæli
<< Home