Veikindi
Já það er sko ekki gaman að vera veikur. Nína er búin að vera svvoooo veik síðan á miðvikudaginn að ég skellti mér með hana til læknis í dag, tæpar 40 gráður og bara liggur fyrir. Mjög ólík sér og það er ekki gott merki, þá er eitthvað verulegt að. Hún fékk sýklalyf, ég er nú ekki hrifin af því en sá það að lækninum stóð ekki á sama, með ljótann hósta og bara alveg búinn á því, höfuðverkur og illt í augunum. Nú er maður bara að dæla í hana, náttúrulyfjum og almennum læknislyfjum eins og paracetamól og nefsprey. Vonandi virkar þetta á hana. Amk er hún aðeins farin að tala við okkur. Kannski smá ýkt en ég er alveg ónýt þegar hún er svona slöpp. Sjáum hvernig hún verður á morgun.
Við frestuðum því að fá heimsóknina þar til um næstu helgi vegna veikninda Nínu, líka leiðindar rigning um helgina þannig að það er bara hið besta mál.
Svo bara skella sér í saumó á sunnudaginn til hennar Svölu í Bad Munstereifel.
Góða helgi og ekki láta flensuna ná í ykkur....


5 Comments:
við vorum að klára þennan pakka, fyrst fékk Jói flensuna og svo Þórný bæði svooo veik og mamman svooo stressuð yfir þessu og svefnlaus. En þetta gengur yfir, gott að hafa góða mömmu hjá sér til að stjana við sig :)Góðan bata
kv Systa
Æ,æ, það er nú gott að þið eruð búin með þennan pakka. Það er gott að maður er hjúkrunarfræðingur á svona dögum, stjanar við og vill sjá spútum, ertu búin að pissa eitthvað í dag osfrv. Sem mamma hefur maður samt alltaf sömu áhyggjurnar held ég. En sem betur fer líður þetta hjá. Hún er mun hressari í dag en ekki orðin góð ennþá.
Vonanadi fer þetta nú að lagast. Það er ekki gaman fyrir svona hressa stelpu að vera veik:-/
Æææææ, vonandi að Nína fari að hressast! Leitt að heyra af Lazarus.
Sendum ykkur batakveðjur.
Kveðja,
Anna Sigga, Ragnar Stefán og Hekla
Já hún er farin að hressast, þökk sé ykkar stuðningskveðjum. Vonandi kemst hún í skólann á morgun í enskupróf...
:-þ
Skrifa ummæli
<< Home