þriðjudagur, mars 28, 2006

Sól og reiðtími

Á þriðjudögum er gaman. Þá er skemmtilegt í skólanum hjá Nínu og leikritsæfing eftir skóla. Þegar heim er komið förum við svo strax í reiðtíma. Við þurfum að keyra í hálftíma til að komast að reiðbænum þar sem íslensku hestarnir eru þar sem Nína tekur reiðtíma. Það finnst henni gaman. Hún er nú þegar búin að ákveða að kaupa sér hest á Íslandi, þegar hún verður 14 ára! Hún er dugleg á hestbaki og góð við hestana. Það er gott að læra rétt vinnubrögð við svona íþrótt. Hún ætlar að kíkja upp í hesthús á fyrir utan Akranes þegar við förum heim um páskana. Hana langar að fá vinnu við að hugsa um hesta þegar við flytjum til Akraness, bara til að geta farið á hestbak og svona. Ekki til að fá laun. Skemmtilegt þegar maður er með ákveðnar hugmyndir þegar maður er tíu ára, bráðum ellefu, n.t.t. á páskadag þetta árið en hún er einmitt fædd á páskadegi.

Í dag var svo yndislegt veður, nánast Íslenskt gott veður, vindur fauk um eyru manns, sólin kom og fór, kom aðallega og það var opin-úlpu/flíspeysu hiti. Þegar ég segi hitastigið fá allir hláturskast því á Íslandi væri maður eflaust úti á palli á bikiníi í sólbaði við þetta hitastig svo ég læt það liggja á milli hluta.

Eigið góðan dag, ég ætla að fara að borða kvöldmat, ykkar Helga

3 Comments:

Blogger Bippi said...

Mér finnst svo frábært þegar að krakkar vilja gera eitthvað án þess að fá pening fyrir.....það snýst einhvernveginn allt um peninga....:O/

10:43 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég get spurt Hauk og Stefán (pabba Hannibals og pabba Eyglóar) hvort hún megi koma í hesthúsið þeirra. Þeir eru saman með hesthús fyrir utan Akranes. :)

Já það er ekki hægt að segja það sama með veðrið hérna á Íslandi.. það er nú meira rokið og meira að segja stormviðvörun á Akureyri í gærkvöldi í fréttunum.

Bið að heilsa!
Þóra

4:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já Þóra það væri gaman ;-)
Það svoleiðis fuku þök og kranar og alls kyns dót í Hamborg í fyrradag í hvirfilvind sem gekk þar yfir bæinn vegna "hita" mismunar sem myndaðist í loftinu.

Vonandi gengur þetta rok bráðum yfir
kveðja
Helga

5:51 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters