sunnudagur, ágúst 06, 2006

Skólabyrjun í næstu viku

Þá er komið að því. Fríið er brátt á enda. Það er alltaf jafn sorglegt þegar skólinn byrjar aftur finnst dömunni á heimilinu. Enda ekkert að því að vera í fríi, þetta eru nú bara 6 vikur sem er ekki mikið fyrir unga dömu sem er á fullu í lífinu. Hún er búin að hafa það mjög gott í skólafríinu, fór eina viku á reiðnámskeið þar sem gisting á sveitabæ var ekki amaleg, þar var hún ásamt um 20 ungum dömum og leiðbeinundum. Hún sagðist sko alveg vilja gera svona aftur. Það er nú gott að henni leið vel þar. Nú svo eignaðist hún bróður og var mikið dugleg og er að stússast í kring um hann. Fór á leikjanámskeið hjá bænum og fór í stutta heimsókn ein í lest til Munster að heimsækja vinkonu sína. ÞEss á milli var auðvitað geggjað veður hjá okkur og lá leiðin oftar en ekki í útisundlaugina sem er ný hjá okkur í bænum og þar var maður með sólhlíf eða sólhlífðarskel til að geta hvílt sig á milli þess sem maður var í lauginni og fengið sér saltstöng eða smurt brauð og eitthvað að drekka. Mikið sport er líka að kaupa sér franskar eða ís í sundlaugarsjoppunni. Um daginn sagði Nína að hún hefði séð jafn lítið barn og Balthasar væri í sundi þannig að ég ætti bara að drífa mig!

Þannig að í dag er á dagskránni að fara í gegnum skólatöskuna með tusku og kíkja í pennaveskið, hvernig ástandið er á þeim bæ.

Á miðvikudaginn er fyrsti skóladagurinn, það verður gaman að vita hvernig nýja stundaskráin er og við hliðina á hverjum hún situr....

Svo er okkur boðið í Einschulung á fimmtud. það er voða skemmtileg hátíð þegar krakkarnir byrja í sex ára bekk. Haldið sérstaklega upp á það, þau fá svona Schultute sem er risa kramarhús með fullt af gjöfum í og nammi. Myndir af þeim sérstaka og skemmtilega degi líta út eitthvað á þennan hátt.




Heiðrún og Kristleifur til hamingju með flutninginn, ég bíð spennt eftir update á blogginu, en það er örugglega nóg annað að gera þessa dagana hjá ykkur við að koma ykkur fyrir og undirbúa fyrsta skóladaginn hjá frumburðinum í nýja landinu.

Þetta er orðið gott, ég bið að heilsa ykkur í bili og þakka fyrir kveðjur á barnalandinu....

3 Comments:

Blogger Bippi said...

Já, sex vikur eru kannski einum of lítið fyrir krakka á þessum aldri....samt er nú örugglega alltaf viss spenna að byrja aftur þó svo að þau vilji ekki viðurkenna það.

Jú, hérna er allt alveg dásamlegt. Fyrst og fremst erum við ótrúlega heppin með nágranna sem hafa verið ómetanleg í að hjálpa okkur. Hverfið hérna er mjög rólegt og fínt og Snorri er mjög lukkulegur með þetta allt saman;o)

1:47 e.h.  
Blogger Helga said...

Gott að heyra að allt gengur vel hjá ykkur, hlakka mikið til að koma í kaffi til ykkar þarna í Akranesnýlendunni....

6:03 e.h.  
Blogger Bippi said...

Já, það eru sko allir mjög spenntir að hitta ykkur. Ég er að sjálfsögðu búin að segja fólki frá planinu;o) Verst að það er svo langt þangað til.....

11:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters