þriðjudagur, október 03, 2006

Hjólakeppni í Coesfeld

Alex eiginmaður og hjólreiðakappi með meiru tók í dag þátt í frábærri hjólreiðakeppni ásamt fleiri hundruðum öðrum hjólreiðamönnum, frá Munster til Munster, í hring sem var 90 km. Það rigndi eitthvað af leiðinni og voru menn blautir, hvort sem það var rigning eða sviti. Ég og Balthasar fórum, Nína svaf, ég tók myndir. En getið þið ímyndað ykkur hvað það er erfitt að horfa og taka myndir samtímis, í rigningu n.b. Hvað um það, ég náði ansi mörgum góðum myndum þegar allur hópurinn kemur að manni, alveg eins og í Tour de France, ótrúlega flott sjón. Ég náði líka einhverjum góðum af hjólreiðamönnum, en bara í brot af öxl og brot af hjálmi (aftanfrá) af Alex!!!! snökt, snökt.... en hann sá mig og það skiptir mestu. Það var mjög gaman að standa þarna alveg við þar sem þeir hjóluðu, finna vindinn sem kom og sjá hvað það gladdi ýmsa að maður væri að klappa og hrópa til þeirra, HOHOHOHOHOHO




Balthasar stendur nú frammi fyrir fyrsta fríinu sínu. Ég er ekki frá því að það fari eitthvað í magann á honum, kannski er það samt frekar laukkakann, plómukakan og allt annað sem móðir hans lætur inn um munn sinn. Vona bara að allt gangi streitulaust á hraðbrautinni.

Nína er komin í tveggja vikna skólafrí og það er ekki laust við það að þungu fargi sé létt af henni, svo ekki sé minnst á mikið álag síðastliðnar tvær vikur í skólanum, próf í líffræði, reikning (besta einkunn hjá Nínu af þessu skólaári), latínu, þýsku og ensku. Þannig að nú er bara tærnar upp í loft og viðra þær!

Oma og JAn komu í heimsókn yfir helgina, það var gaman, við kíktum til Ahaus og til Munster og ég var ansi svæsin í innkaupunum.
Bestu kveðjur og hafið það gott

1 Comments:

Blogger Bippi said...

Hann Alex er nú alveg ótrúlega dulglegur!!!

Heyrðu, ég hlakka til að sjá ykkur í dag;) (Það er ekki oft á undanförnum árum sem maður hefur getað sagt það)

8:13 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters