Hátíðarhöld
voru í hámarki hvar sem við vorum. Við létum stjana við okkur, gefa okkur og börnum okkar fínar gjafir og nutum þess að vera saman með fjölskyldu Alex þrátt fyrir að hafa verið mikið á ferðinni, frá a til b og svona en nú get ég hvílt mig á meðan Alex er að vinna í Brussel, hann kemur heim annað kvöld og fer svo aftur fyrsta jan.
Við fórum í guðsþjónustu á aðfangadag en við höfum gert það undanfarin jól og mér finnst bara jólin ekki byrja fyrr en að við komum heim úr guðsþjónustunni. Í þetta sinn verð ég að lýsa yfir vonbrigðum með predikuna hjá prestinum. Hún, það var kona, talaði um stjórnmálalega réttlát jól eins og hefur verið mikið í umfjölluninni frá Englandi. Að ekki megi lengur segja marry christmas eða happy heldur seasons greatings, til að mismuna ekki þeim sem trúlausir eru eða þeim sem eru islamstrúar eða annars trúar og halda ekki jól. Ég varð mjög sár yfir því að svona málefni skuli hafa verið tekið fyrir þar sem fólk sat í kirkjunni til að fagna fæðingu frelsarans og spennan í hámarki hjá krökkum sem komu með foreldrum sínum áður en að pakkar yrðu opnaðir og matur borðaður.
En prestar hafa það ekki auðvelt, þurfa að vera daglega með frábærar guðsþjónustur þessa daga þegar tækifæristrúaðir sjá sér fært að mæta loksins í guðshús!
Setti nýjar myndir á barnalandið,,, hvernig væri nú að hreyfa sig aðeins og búa til smá pláss fyrir nautasteikina á gamlárs!!! nammi namm.... reyndar ekki grilluð eins og hjá Krissý og Hadda í 40 stiga hita í Ástralíu en samt....


5 Comments:
Æi, mér finnst þetta alveg fáranleg umræða á sjálfan Aðfangadag. Af hverju að vera að flækja hlutina svona...auðvitað á bara að segja Gleðileg Jól og ekkert annað!
Það var nú gott að þið höfðuð það gott um jólin Helga mín. Gaman væri að heyra aðeins í þér áður en að nýja árið gengur í garð;o)
Voðalega getur fólk verið viðkvæmt!Ég segi bara gleðileg jól og þeir sem móðgast við það verða bara að móðgast. Ég myndi ekki móðgast ef mér yrði óskað gleðilegrar ljósahátíðar eða Ramadan né nokkuð annað, bara skemmtilegt :)
En þetta er ekki umræða sem passar í kirkju.
Frábærar myndir og greinilegt að þið höfðuð það ljómandi gott :)
Já mér finnst furðulegt að mæta með svona umræðu í messu á aðfangadag. En þetta er örugglega mikilvægt umræðuefni og heitt efni fyrir marga hverja. Takk fyrir KAren, við höfðum það ágætt, ansi mikið streð að flakka svona á milli staða en samt gaman að hitta alla.
kv.
Helga
Hafið þið það gott yfir hátíðarnar!
Hlakka til að sjá ykkur.
Jólakveðja
Kata frænka
Gleðilegt ár Helga og fjölskylda. Gott að þið höfðuð það fínt hjá fjölskyldu Alex.
Óskum ykkur gleði á nýju ári.
Sjáumst fljótlega
Inga og co.
Skrifa ummæli
<< Home