mánudagur, nóvember 27, 2006

Aðventukransinn tilbúinn

Haldiðið að ég hafi ekki skellt aðventukransinum á borðið í gær, flottur hjá mér í þetta sinn sem endranær. Ég er með svona þykk stór kerti í fyrst sinn og það kemur bara mjög vel út, ætla að skella inn mynd við tækifæri. Fyrsti í aðventu er næsta sunnudag, 3.des og fjórði í aðventu er aðfangadagur, 24.des....


um helgina var kveikt á ljósunum hér úti í bæ eins og víða annarsstaðar og við létum okkur ekki vanta, þar var boðið upp á Gluhwein en einhvernveginn langaði fólki frekar í kaldan bjór í 15 stiga hita! En ljósin klikkuðu ekki á því og loksins fer ég að komast í jólaskap, enda veitir ekki af, það styttist óðum til jóla.

Á föstudaginn voru hér 15 þríþrautarkappar í heimsókn hjá okkur, það var haldið upp á fæðingu Balthasars og við buðum upp á gúllassúpu og bjór og það var bara ansi góð stemming enda allt mjög skemmtilegt fólk. Hátíðin endaði þannig að Alex skellti sér á lífið með tveimur góðum félögum og kom ekki heim fyrr en um hánótt þegar húsmóðirin var sofnuð eftir að hafa sett uppþvottavélina af stað en þetta var mjög vel lukkað kvöld.

Balthasar er farin að sofa aðeins lengur í einu á nóttinni, STUNDUM.....
Hann sefur núna til ca 1 eða 1:30 og svo í nótt t.d. vaknaði hann ekki fyrr en kl.5 sem er algjör hátíð. KAnnski er grauturinn að gera sitt????

Jæja þetta er orðið ágætt, ætla nú að skella mér í Real og að fara að láta setja peru í bílinn að framan, ég ek um eineygð eins og er!!!

Lifið heil

7 Comments:

Blogger Karen said...

Gott að lilli leyfir mömmu að lúra aðeins meira :) Fallegt af honum!
Hér var líka kveikt á jólaljósunum um helgina og maður er alveg að detta í jólagírinn!

10:41 f.h.  
Blogger Bippi said...

Hlakka til að sjá mynd af aðventukransinum;o)

Ég er líka alveg komin í gírinn!!!

1:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ekki seinna að vænna en að lýsa aðeins upp í skammdeginu með jólaljósunum, nú hlakka ég bara til að kveikja á aðventukransinum...

jólaknús
Helga

1:24 e.h.  
Blogger Bippi said...

Vá, flottur hjá þér!!!!

Hvað er Real??

3:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Real er svona eins og super brugsen, hagkaup eða álíka. Já takk, geri aðventukrans síðan ég byrjaði að búa sjálf og finnst það voða huggó.
kveðja Helga

11:03 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Já kransinn þinn er látlaus og flottur :)
Við ætlum einmitt líka að fá okkur aðventukrans, annað hvort gerum við hann eða kaupum hann tilbúinn.

Við fengum okkur glögg og eplaskífur í Tívolíinu á sunnudaginn, nammi, nammi, namm.
Það var ekki við eins skemmtilegar aðstæður eins og í Berlín forðum, þegar við vorum á jólamarkaðinum í snjókomu á Þorláksmessu.

Bestu kveðjur

8:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Helga. Flottur krans hjá þér. Ég er lítið fyrir að gera svona kransa, skreyti bara kertastjaka sem ég á. Læt það nægja. Er búin að setja upp nokkur jólaljós og aðventukrans. En í 13° hita er jólastemmingin ekkert gífurleg ;) Það var samt fullt af fólki í bænum í gær og það er viss stemming yfir því.
Þú hefur vonandi fengið peru, ómögulegt að vera eineygð í skammdeginu.

Sjáumst. Inga Björk

11:47 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters