fimmtudagur, desember 14, 2006

Fimm mánaða

Í gær varð Balthasar fimm mánaða. Af því tilefni fórum við í vigtun, 7.990gr sem maður getur nú verið mjög ánægður með. Enda er drengurinn duglegur að borða grautinn sinn og drekka brjóstamjólk, hvort sem er hjá mömmu (oftast) eða þegar mamma er ekki heima úr pela hjá Nínu eða pabba. Það er gulls ígildi að hafa brjóstamjólk í frysti. Ég fékk lánaða brjóstapumpu hjá vinkonu minni og svo þegar ég veit að ég er að fara eitthvað eða eitthvað stendur fyrir þá pumpa ég nokkrum dögum áður, bara svona 50-80 ml á kvöldin eftir að hann er búinn að drekka til að setja í frysti. Eins og er er ég nánast hvert einasta kvöld að gera eitthvað. Gaman að þessu. Fór um daginn á bókakynningu í heimahúsi, bækur fyrir börn, ansi sniðugt svona svipað form og Tupperware og nærfötin og hreinlætisvörurnar og hvað veit ég sem selt er í heimahúsi.

Nína er að fara að spila á smá tónleikum í dag. Hún hefur tekið þá ákvörðun að hætta að læra á fiðluna í bili þar sem við erum einhverntíma bráðum að fara að flytja. En það hefur ansi mikið dalað áhuginn, vonandi náum við að pressa á hana á Íslandi að halda áfram!

Við systkinin, Óli og ég vorum að sækja um starf hjá Akranesbæ og Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, já skemmtileg tilviljun, sem verkefnastjóri æskulýðs-og forvarnar! Um að gera að byrja að sækja um vinnu, það er þá góð pressa til að velja tímapunkt fyrir flutningana ekki satt. Getið skoðað umsækendur hér http://akranes.is/default.asp?sid_id=5502&tId=99&Tre_Rod=002|010|&qsr

Það er yndislegt að njóta jólatímans, borða smákökur, drekka gluhwein og kinderpunsch og verða kalt. Já það er loksins aðeins að kólna hjá okkur. Reyndar allt að 9 stigum spáð í dag en hefur verið um 5-6 stig undanfarið. Ég er á fullu að skoða í glugga og verslunum gjafir fyrir okkur fjölskylduna sem ég sé um að versla. Bara gott af því að segja, ég þarf bara að fara að taka ákvörðun bráðlega, ekki nema rúm vika til jóla.

Vil nota tækifærið og senda góðri hjúkkuvinkonu styrk og góða strauma þar sem hún fæddi í gær dreng í 28.viku óléttunnar. Drengurinn er á vöku og stendur sig eins og hetja. Gangi þeim vel og guð megi vera með þeim á þessum erfiðu tímum.

Jæja elskurnar, það fer að verða lengra og lengra á milli blogga hjá mér, en það er bara þessi tími, nóg annað að gera en að vera við tölvuna. Það koma einhverntíma aðrir tímar, þegar ég blogga kannski oft á dag ef því fer að skipta. Ég er mjög glöð og ánægð með lífið og hlakka til að fagna jólunum í faðmi fjölskyldunnar Alex megin. Lifið heil, ykkar Helga

7 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Til hamingju með 5 mánaða afmælið Balthasar og fjölskylda!

Já hann dafnar aldeilis vel pilturinn :)

Við erum líka dugleg að borða smákökurnar þínar og smökkum öðru hverju glögg!
Það er skiljanlegt að ekki vinnist tími til að blogga núna.
Kærar kveðjur héðan úr Köben þar sem 11° hiti er núna.

5:05 e.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Til hamingju með afmælið Balthasar!!!

Þetta er samt alveg ótrúlega sérstakt að birta nöfn umsækjenda á vefsíðunni... þetta er mjög sérstakt að geta ekki sótt um vinnu í friði... en þetta er kannski gert til þess að fá eitthvað feedback frá öðru fólki vegna þess að þau hafa KLÁRLEGA VERIÐ BÚIN AÐ ÁKVEÐA EINHVERN/JA Í ÞESSA STÖÐU þar sem það voru bara 3 vikur frá lokum umsóknarfrests að ráðningu... Hmm... hver var búinn að 'losa' sig úr vinnu fyrir 2 mánuðum síðan? Ég bara spyr...

6:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta er mjög sérstakt finnst mér líka, ég hefði annars ekki sagt þetta við nokkurn mann að maður sé farin að spá svona stíft í að flytja.

Takk fyrir árnaðarkveðjurnar elskurnar....
ykkar Helga

11:19 e.h.  
Blogger Bippi said...

Til hamingju með drenginn....tíminn er ótrúlega fljótur að líða...mér finnst svo stutt síðan að hann var nýfæddur!!!

Er búið að ráða í stöðuna eða?

9:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með drenginn, voðalega er þetta fljótt að líða ;)

11:30 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið Balthasar :)
Og ég er sammála þér með það að ég vona að Nína hætti ekki alfarið að spila.

Gangi ykkur vel og góða skemmtun í jólaundirbúningnum og að velja jólagjafir og svona
B.kv. Þóra

11:31 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir stelpur mínar, já ótrúlegt hvað tíminn líður. Heiðrún það er ekki búið að ráða, amk ekki seinast þegar ég vissi.
Ragga takk fyrir, ég er alltaf að fara að setja link á þig :-) Gaman að þú skulir kíkja, er það rétt skilið að þú eigir líka þýskan mann?
Þóra já ég vona að ég nái Nínu aftur í tónlistaskóla, þú kannski blikkar hana líka þegar að því kemur???

kv.
Helga

12:22 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters