sunnudagur, desember 17, 2006

Samvera og dans í stofunni

Æðislegur dagur í dag. En vá hvað maður er þreyttur. Mig langaði bara svo að segja ykkur frá þessu. Í dag fórum við í 40 afmælisveislu til nágrannakonunnar og sátum við átu frá 11 til hálf fimm. Geri aðrir betur.... Nína passaði, ég veit ekki hvað við gerðum ef við ættum ekki þessa elsku til að hjálpa okkur. Við komum heim í stuttan tíma því áfram hélt fjörið. Við hjónin vorum búin að festa kaup á miða á abba sjóv en eins og margir þeir sem þekkja okkur vita er Alex algjör Abba FAN. Þessi sýning var í bænum okkar og var rosalega gaman. Við dönsuðum allan tímann og sungum með og ég er ekki frá því að maður hafi tárast, já svona er maður en það var bara svo fallegt og sorglegt þegar þau sungu The winner takes it all. Frábært lag.

Við komum svo heim, reyndar ekki seint, bara um 11 þegar allt var búið og héldum áfram að dansa við Abba í stofunni, bara tvö lög en æðislegt. Maður er orðinn svo nægjusamur í þessu lífi.

Gleðilega þriðju aðventu, við ætlum í sund í fyrramálið, Alex fer á sundæfingu og við hin þrjú förum bara með. Svo fer Alex til Bologna fram á fimmtudag.

Njótið lífsins....

5 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

En gaman að heyra að þið skemmtið ykkur svona vel í gær.Þetta er nauðsynlegt öðru hverju:)

Það er munur að geta dansað heima hjá sér, við gerum þetta líka stundum. Hér getum við bara dansað á baðherbergisgólfinu (sem er ekki stórt!)af því að það brakar svo rosalega í timburgólfinu ;)

Njótið dagsins. Bestu kveðjur.

8:39 f.h.  
Blogger Bippi said...

Frábært hvað þið skemmtuð ykkur vel....og hélduð svo bara áfram þegar að heim var komið!!!! Geri aðrir betur!!!!

Þið eruð bara snillingar elskurnar mínar;o)

12:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já og svo er hann farinn þessi elska...

Sem uppbót þá setti Nína upp gervijólatréð okkar í dag og skreytti það.

Bara verst hvað við erum búin að gleyma miklu frá dansnámskeiðinu :-(

kv.
Helga

8:32 e.h.  
Blogger Karen said...

Mér finnst eitthvað svo dásamlega rómantískt við að dansa heima hjá sér. Og frábært hvað þið eigið duglega dóttur og hvað þið skemmtið ykkur vel :)
Svona á þetta að vera!

10:17 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Daginn á mánudegi.
Þið eruð svo frábær, sæi okkur í anda dans við Abba lög í stofunni! Minn maður kann ekki að dansa.

Ekki verður Alex að heima á jólunum? Hvenær kemur hann heim frá Bologna?
Sjáumst við eitthvað fyrir jól? Ég er alltaf til í hitting :)

Láttu mig vita ef þú hefur stund.

Kveðja, IBH

10:49 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters