Gaman á aðventu
Það er svo gaman á aðventutímanum eins og lesendum finnst mörgum hverjum líka. Í morgun var ég á mömmunámskeiði og við komum með smákökur og fengum kaffi og höfðum það huggó. Nína fór með nokkrar smákökur í skólann, Alex tók líka með sér smákökur.
Við erum með yndislegt jóladagatal. Þetta er þriðja árið sem við gerum þetta, hver og einn okkar þriggja eldri fjölskyldumeðlima þarf að hafa til fjórar gjafir fyrir hina tvo og svo er ákveðið skipulag á því hver fær hvenær gjöf og frá hverjum. Ég er búin að fá tvær gjafir, 3.des frá Alex, það var fjólublátt kerti og 5.des frá Nínu, það var lítil sápa. Hver okkar fær alls átta gjafir og þetta er svo skemmtilegt, það eru allir svo spenntir, sá sem fær og sá sem gefur, að sjá viðbrögðin. Að auki á Nína súkkulaðidagatal sem er með litlum súkkulaðibitum.
Það er svo gaman að hafa ljós í gluggum, konan á móti er reyndar líka með ljós en við tvær fjölskyldurnar í götunni erum þær einu! Mér finnst þetta bara gera svo mikið.
að lokum ætla ég að koma því lauslega að hve heppin manneskja ég er. Í dag fengum við svaka skemmtilegan pakka frá Þóru frænku á Íslandi. Í honum voru gjafir fyrir börnin mín, svakalega pæjuleg röndótt hettupeysa og eyrnalokkar í stíl sem fóru beint í eyrun fyrir Nínu og fyrir Balthasar spiladós með íslenska Þjóðlaginu krummi sat í klettagjá, mjög skemmtileg, alvöru íslensk list. En fyrir mig voru lakkrískurl til að baka og nóakropp til að narta. Ég ákvað því strax að skreppa í Edeka og kaupa púðursykur (sem er nýfarin að fást þar) og skelli mér á hjólið í brjáluðu roki og rigningu. Á leiðinni heim kemur (hætt að rigna) úr heiðskýrum himmni (hérumbil) sletta á buxurnar mínar!!!! Já og hvað haldiði að það hafi verið? En það fékk mig á einhvern undarlegan hátt til að hugsa, bíddu var ekki eitthvað í dag..... jú TANNLÆKNIRINN.... ég átti semsagt tíma hjá Tannlækninum fyrir tíu mínútum síðan! Og ekki í fyrsta sinn sem ég gleymi tíma hjá þessum vissa tannlækni sem er annars svo fínn, fyrir utan það að vera tannlæknir. Amk ég ákvað í skyndi, í staðin fyrir að hjóla strax heim, fór ég til Tanna, með skuggalegan brúnan blett á buxunum, rennandi blaut og of sein,,,,,,,,,


6 Comments:
Við stálum einmitt jóladagatalshugmyndinni (vá langt orð!!) frá ykkur! Þetta er mjög skemmtilegt fyrir alla í fjölskyldunni!!!
He, he, það er nú ekki mjög líkt þér að gleyma svona tíma hjá tannlækninum....þú hefur bara orðið svona æst þegar að þú fékkst íslenska nammið!!!! ;o)
Rosaleg sniðugt hjá ykkur með dagatalið, ætla líka að fá að stela þessarri hugmynd:)
ég var í sumar svo ægilega heppinn eða þannig lagað að það var skitið á mig tvisvar sama daginn, ótrúlegt, fyrra skiptið á hausinn á mér og annað skiptið á axlirnar á mér þar sem ég var í sólbaði í garðinum:).....það er nú hægt að hlægja að þessu svona eftirá.
Ha, ha, ha, Christel....ég sem hélt að félagi okkar Harðarson væri sá eini sem að gæti lent í einhverju svona....!!! ;o)
Ég hef nefninlega líka lent í þessu tvisvar áður, einu sinni hjólandi í roki! og einu sinni á pallinum hjá mömmu á Jörundarholti. Þetta boðar gott, ég er alveg með það á hreinu!!!
En hann Einar á samt vinninginn, það eru ótrúlegar sögur sem hann lumar á karlinn. T.d. þegar hann vaknaði of seint í skólann, klukkan orðin níu.... hann drífur sig á lappir og skilur ekkert í því að það er ENGINN á ferli!!! Hvað haldiði að klukkan hafi verið??
En Heiðrún það er eiginlega rétt hjá þér, ótrúlega ótýpískt ég að gleyma svona en ég hefði ekki verið hissa ef hann hefði neitað að taka mig því ég gleymdi svo oft tímum sem Nína átti. Það endaði með því að ég fór með konfektkassa til þeirra!!! Já NAMMI til TANNA....
Bara gaman að allir noti þetta dagatal, þá er líka spennan meiri, ekki bara krakkarnir, heldur líka við fullorðnu!
kv.Helga
Daginn í sólinni. Ætli vetur konungur sé á leiðinni? Smá frost á þökum og bílum í morgun....
Það hefur s.s. fugl skitið á þig! Það hefur aldrei komið fyrir mig, bara bílana mína.
ÖFUND að eiga Nóakropp og lakkrískurl mmmmmmmmmmmmmm Ég ætti að koma í heimsókn ;)
Góðan SUNNUdag. Inga
Það er þá ekki í fyrsta skiptið sem fugl skítur á Helgu!!!
Góða helgi elskurnar!
Skrifa ummæli
<< Home