Föt og hátíðirnar
Það var nú gaman í dag þegar ég klæddi son minn í aðra útipeysu en þær sem ég hef verið með hann í frá fæðingu. Drengurinn að nálgast fimm mánaða afmæli sitt. En það er bara eins og ég sé með Nínu litlu í fanginu þegar hann er kominn í gamla ullarpeysu sem ég því miður man ekki hver prjónaði og með prjónaða húfu sem amma Lilla gaf henni Nínu. Svo þetta hringlótta andlit, bara smellpassar við útlitið á Nínu á svipuðum aldri. Það er sama hvað sum föt eldast, þau eru alltaf jafn fín, eins og til dæmis þessar peysur sem ég er búin að grafa upp úr kössum á háaloftinu. Yndislegt, líka svo mikil sál í þeim.
Nú fer að styttast í jólin og það hefur verið mikil umræða um jólahald á okkar heimili þetta árið. Við verðum í Þýskalandi og við ætlum ekki að vera heima hjá okkur. Þetta eru amk hlutir sem eru alveg á hreinu. Við ætlum að vera á aðfangadag hjá bróður Alex og það verður sérstakt að vissu leiti en ég er mjög jákvæð og hlakka mikið til jólanna. Bræðurnir verða allir þrír saman með fjölskyldum sínum á aðfangadagskvöld og það eru tíu manneskjur í mat og drykk. Mikið fyrir suma sem eru vanir að fá sjaldan svon marga gesti í einu. Það verður farið í kirkju (við gerum það iðjulega þegar Því verður viðkomið) og svo verða opnaðir pakkarnir og svo borðað!
Nú þegar þetta er ákveðið er bara spurning með hina hátíðsdagana, til að sameina fjölskyldur allra þá á að borða brunch á veitingastað á jóladag og þá geta allir komið og enginn er í fýlu. En það er oft erfitt fyrir börn þegar foreldrar búa ekki lengur saman og vilja vitanlega bæði njóta barna sinna yfir hátíðirnar. Það er svoleiðis í okkar tilfelli en það hefur fundist príðis lausn á þessu vandamáli og eru allir sáttir. Þá geta bara komið jólin..... nei ekki alveg en ég get sagt ykkur það að það er léttir að vera komið með þetta á hreint, tala nú ekki um þegar alltaf er verið að spyrja og hvar ætlið þið svo að vera á jóladag og .....
Mér finnst skemmtilegast að vera á mínu heimili á aðfangadag við að opna gjafir og borða en fjölskyldan er það mikilvægasta sem maður á í þessu lífi að mínu mati og ég hlakka til að geta notið nærveru þeirra í meira mæli.
Góða nótt....


6 Comments:
Það er frábært þegar fólk getur fundið góða leið til að allir séu sáttir yfir hátíðarnar :)
Flott hjá ykkur að vera sem mest með fólkinu hans Alex þar sem að þið eruð nú á leiðinni heim....eða er það ekki? :o)
Mér finnst handprjónaður fatnaður vera listaverk og gaman að klæða börn í þau!!!
Fín lausn með brunch á jóladag. Það verður gaman fyrir bræðurna að vera saman með fjölskyldur sínar á jólunum.
Já þetta er bara hin besta lausn á þessu máli. Ég er glöð og ánægð að fjölskyldan hittist, ég er alltaf svo mikið fyrir svoleiðis!
kv.
Helga
Góðan daginn á Nikolaustag. Hef ekki kíkt í smá tíma og kommentaði því ekki á kökubaksturinn þinn....þú ert ekkert smá dugleg! Ég bakaði eina sort um daginn og veit ekki hvort ég baka fleiri, kannski piparkökkur? Seydi er svo lítill smákökukall svo það endar of með því að ég borða mest af þessu sjálf.....
Jólastemmingin er svona að koma en í 16° hita er varla hægt að ímynda sér að það sé kominn desember. Ég reyni að hlusta á jólalög frá Íslandi á netinu, alveg nauðsynlegt. Við verðum heima á jólunum enda ekkert jólahald "hinum megin" ;)
Sjáumst, Inga
Gott að heyra að stefnir í Familienfest um jólin og allir eru sammála. Það er svo erfitt ef fólk segir "hjá mér eru ekki jól nema ..." og er ekki tilbúið að breyta til. Eru ekki jólin bara í hjartanu? Ég tala nú ekki um ef maður er með sínum nánustu:)
Nikolauskveðja (við rétt mundum eftir sokknum í nótt:)
Anna o.co
Skrifa ummæli
<< Home