Gleðilegt nýtt ár

með gæfu og farsæld, velfarnaðar í ástum, starfi, námi, fjölskyldu og lífinu almennt, fyrir ykkur öll lesendur góðir, hvort sem er þeir sem kvitta eða ekki.
Við höfðum það mjög gott á áramótunum, skutum upp nokkrum rakettum og Nína var mjög dugleg að skjóta og kveikja í litlum skoteldum.
Balthasar byrjar vel í nýja árinu, allt á fullu á okkar bæ, hann er farin að hreyfa sig afturábak, liggjandi á maganum en ýtir sér til baka. Duglegur strákurinn....


7 Comments:
Gleðilegt árið sömuleiðis Helga mín. Duglegur strákur hann Balthasar.
Vonandi sjáumst við fljótlega;o)
Takk fyrir góðar kveðjur, ég er nú ekki nógu dugleg að kvitta fyrir lesturinn en ég kíki alltaf reglulega á þig og hef gaman af lestrinum :)
ps. það er hjúkkubrunch á morgun hvenær ætlar þú að koma og vera með okkur ?!? Þín er alltaf sárt saknað.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna! Mér líst vel á ungann bara farinn af stað enda eflaust freistandi að fara að skoða heiminn soldið :)
Og gaman hjá Nínu að sjá bara um sprengjurnar.
Nýársknús til fjölskyldunnar.
Gleðilegt ár elskurnar, það verður gaman hjá ykkur (og okkur öllum)um næstu áramót þegar þið komist í stórskotahríðina hjá Valla bróður :)
Ég hlakka til að sjá Balthasar ferðast um á maganum.
Takk fyrir kortið sem við fengum frá ykkur í morgun, flott mynd af krökkunum.
Gleðilegt ár Helga mín og takk fyrir öll þau gömlu...hittumst nú vonandi oftar á næstu árum:)
Gleðilegt ár Helga! Við bíðum spennt eftir að fá ykkur hingað, vonandi gengur allur undirbúningur að óskum:)
Takk fyrir stelpur, ég er líka spennt fyrir því að flytja á Skagan og hitta alla alltaf.... eins gott að maður viti sín takmörk ekki satt...
Skrifa ummæli
<< Home